Efni
Hvað er keramik?
Keramik er hitaþolið endingargott efni sem hefur verið notað í nytjahluti þúsundir ára. Grunnefnið er mismunandi tegundir af leir sem er brenndur í ofni og verður meðal annars að terrakotta, borðbúnaði, leirmunum og postulíni. Við hjá IKEA notum keramik aðallega í blómapotta, postulín, handlaugar og eldhúsvaska. Þar sem hægt er að móta hann að vild og glerja með hvaða lit og gljástigi sem er eru möguleikarnir endalausir.
Hugleiðingar hönnuða
N Karlsson/M Axelsson, hönnuðir
„GLADELIG borðbúnaður er með margbreytilegum glansi sem færir yfirborðinu líflegt og handgert útlit. Við settum einnig mikla vinnu í að finna réttu hlutföllin og formið til að borðbúnaðurinn komi vel út. Við vildum að hann yrði notaður við ýmis tækifæri og matargerð – allt frá skyndibita að sunnudagssteikinni. Eftirlætið okkar er meðalstór diskur með örlítið hærri kanti sem færir honum hefðbundið útlit í bland við nútímahönnun.“