595,-
595
Hugleiðingar hönnuða
Friso Wiersma, hönnuður
„Ég vann áður sem bátasmiður og elska náttúruleg efni. Þegar ég hannaði GRÖNSAKER línuna vildi ég prófa að hafa formið á skálinni ólíkt að innan og utanverðu bæði af fagurfræðilegu og hagnýtum ástæðum. Hugmyndin er að hafa sem mest af salatinu sýnilegt, svo þú sjáir hvað er verið að bera á borð. En umfram allt þá er skálin og salatáhöldin til heiðurs bambusnum – ég vona að fólk taki eftir fegurð hans í hvert skipti sem það notar vörurnar.“
Efni
Hvað er bambus?
Bambus er sterkur, sveignalegur og vex hratt – það er einnig hægt að nota hann á marga vegu og því er hann frábært endurnýjanlegt hráefni. Hann er í raun grastegund sem vex án þess að þurfa á áburði eða vökvun á að halda. Þegar hann hefur verið skorinn upp vaxa nýir stilkar sem hægt verður að nýta eftir fjögur til sex ár. Við hjá IKEA notum bambus meðal annars í húsgögn, baðherbergisvörur, körfur og lampaskerma og erum stöðugt að leita að nýjum leiðum til að nýta þetta fjölhæfa hráefni.