Hugleiðingar hönnuða
Henrik Preutz, Wiebke Braasch, Ola Wihlborg og Nike Karlsson, hönnuðir.
„Nú til dags fær fólk innblástur að matreiðslu og borðhaldi hvaðanæva að úr heiminum. Við höfðum þetta í huga þegar við hönnuðum IKEA 365+. Borðbúnaðurinn er einfaldur en þó flott hönnun sem virkar fyrir allar gerðir af mat og við öll tækifæri. Diskarnir eru með háum köntum og því er auðvelt að halda á og borða af þeim. Skálarnar henta líka fyrir framreiðslu og nýtast fyrir allt frá salati að morgunkorni og kökur líka. Markmið okkar var að gera hversdagslífið auðveldara – og aðeins íburðarmeira.“
Samantekt
Allan ársins hring
Þetta er IKEA 365+ línan, sem stendur fyrir allt sem við teljum að einkenni góða hversdagsvöru. Klassískir litir og hönnun sem aldrei fer úr tísku og passar vel við aðra hluti. Harðgerð efni sem þola daglega notkun. Og einnig skemmtileg smáatriði sem gerir eldamennskuna auðvelda og skemmtilega – alla daga ársins. Við vonum að þú sért því sammála.
Gæði
Þolir mikla notkun
IKEA 365+ borðbúnaðurinn er gerður úr sérvöldu harðpostulíni og er þess vegna endingargóður, sterkur og höggþolinn. Það þýðir að þú getur notað hann á hverjum degi í mörg, mörg ár, án þess að hann missi sinn náttúrulega gljáa og lit – og án þess að hafa áhyggjur af því að hann brotni. Þú getur einnig sett hann í uppþvottavél.
Eiginleikar
Auðvelt að nota og geyma
IKEA 365+ virkar fyrir öll tækifæri og alls konar mat. Hvern hlut má nota á ýmsa máta. Það er til dæmis frábært að nota skálarnar bæði til að borða og bera fram í. Borðbúnaðurinn er líka hannaður þannig að það er gott að halda á honum og geyma, því er hægt að stafla flestum hlutunum. Hentugt – alla 365 daga ársins!
Efni
Högghelt
Harðpostulín er harðgerðara en annar leir. Þess vegna er hægt að hafa leirmuni úr harðpostulíni þynnri en þá sem eru gerðir úr steinleir eða leir. Það þýðir að það er bæði létt og endingargott – og má fara í uppþvottavél. Nytsamleg blanda.