10.990,-
Afsakið!
Það er ekki nóg til á lager fyrir pöntunina þína.
LYDERSHOLM
Plast er sá efniviður sem við hjá IKEA notum hvað mest og við munum halda því áfram. Það er sterkt, endingargott, létt og fjölhæft. Plastið er í ýmsum hlutverkum hjá okkur, oft er það aðalefnið í vörunni eða í yfirborðsefnum eins og málningu og þynnu en einnig í íhlutum eins og skrúfum og hillupinnum. Það þarf að gæta að því hvaða áhrif plast hefur á umhverfið og IKEA tekur þeim áskorunum mjög alvarlega. Sem hluti af vegferð okkar til hringrásarkerfis, og áætlun okkar um að víkja frá notkun efniviðar sem byggður er á hráolíu, vinnum við hörðum höndum að því að breyta öllu plasti sem notað er í vörurnar okkar í plast sem unnið er úr endurunnum og/eða endurnýjanlegum hráefnum.
Plast er að mestu leyti framleitt úr olíu eða gasi sem eru óendurnýjanleg jarðefni. Þessar auðlindir endurnýjast ekki og munu að endingu tæmast. Við höfum sett okkur það markmið að fyrir 2030 verði allt plast sem notað er í vörurnar okkar vera unnið úr endurnýjanlegum eða endurunnum efnum. Endurnýjanlegt plast er unnið úr efnum eins og jurtaolíu, maís, hveitikorni eða sykurreyr. Endurunnið plast gerir okkur kleift að gefa ólífbrjótanlegum vörum eins og PET-flöskum annað líf í stað þess að enda í landfyllingu. Endurunnin efni gera það að verkum að við þurfum minna að reiða okkur á olíu sem hráefni. Eins og er eru meira en 40% af plastvörunum okkar úr endurunnu og endurnýjanlegu plasti og við stefnum á að ná því upp í 100%. Þegar við bætum vörum úr endurunnum og endurnýjanlegum efnum við vöruúrval okkar vonumst við til þess að það hafi hvetjandi áhrif á önnur fyrirtæki til að gera slíkt hið sama.
Vörur úr einnota plasti hafa mengandi áhrif á umhverfið sé þeim ekki fargað á réttan hátt. Sem hluti af umhverfisstefnu okkar voru einnota plastvörur teknar úr vöruúrvali okkar árið 2020. Það náði einnig yfir diska, glös og sogrör sem í boði voru á veitingastöðunum okkar. Þeim hefur nú verið skipt út fyrir vörur úr 100% endurnýjanlegum hráefnum.
Pólýetýlen terephthalat (PET) og pólýprópýlen (PP) eru endingargóðar, hreinlátar og höggþolnar plasttegundir. Þar draga ekki mikinn vökva í sig og þola vel ýmis efni. Bæði PET og PP er hægt að endurnýta og endurvinna sem dregur úr úrgangi ásamt því sem endurnýting veitir vörunni lengri endingartíma. PET er það plast sem mest er notað í heiminum og það er meðal annars notað í plastflöskur og ílát fyrir matvæli, drykkjarvörur, hreinlætisvörur, lyf og fjölda annarra neytendavara. Við hjá IKEA notum PET aðallega í kassa, fylliefni fyrir vefnaðarvörur og yfirborðsþynnur á eldhúsframhliðar. PET er samþykkt til notkunar fyrir matvæli og drykkjarföng af heilbrigðisyfirvöldum. Við hjá IKEA notum endurunnið PET-plast sem er unnið úr flokkuðum PET-flöskum sem hafa borist til endurvinnslu.
IKEA leggur mikla áherslu á öryggi og allar vörurnar okkar eru prófaðar til að tryggja að þær standist ströngustu lög og öryggisstaðla á öllum okkar mörkuðum. Viðskiptavinir IKEA eiga að geta reitt sig á að allar vörur sem keyptar eru í IKEA séu öruggar og án skaðlegra efna. IKEA lágmarkar eða bannar (þegar mögulegt er) notkun á öllum efnum og efnasamböndum sem geta haft skaðleg áhrif á fólk og umhverfi.
Vegferð okkar í átt að því að nota einungis endurunnið eða endurnýjanlegt plast mun taka tíma og krefjast nýrra leiða í að gera hlutina, en við erum staðráðin í því að taka ábyrgð og finna nýjar lausnir. Við viljum bjóða viðskiptavinum okkar upp á vörur úr sjálfbærari efnum sem hægt er að endurvinna aftur síðar. Saman getum við skipt sköpum!
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn
Það er tilvalið að hafa mottuna utandyra því hún er vatnsheld og auðveld í umhirðu.
Tilvalið í stofuna eða undir borðstofuborðið, því það er auðvelt að draga stóla til á mottunni til að þrífa.
Liturinn og vefnaðurinn skapa náttúrulegt útlit.
Vörunúmer 204.954.15
1 pakkning(ar) alls
Það dugar yfirleitt að viðra eða ryksuga nýju mottuna til að losna við lykt. Þrif: Notaðu mildan sápulög, bursta með mjúkum hárum og skolaðu vel með vatni. Leyfðu mottunni að þorna alveg áður en hún er notuð. Má ekki þvo. Má ekki setja í klór. Má ekki setja í þurrkara. Má ekki strauja. Má ekki þurrhreinsa. Ryksugaðu, hristu og snúðu mottunni reglulega. Þurrir blettir: Fjarlægðu strax með því að skrapa varlega inn að miðju blettsins. Rakir blettir: Ekki nudda. Notaðu pappírsþurrkur til að draga í sig vökvann, strjúktu svo yfir með rökum klút og mildu hreinsiefni. Láttu fagfólk um hreinsun þegar þörf er á. Notaðu alltaf venjulegan ryksuguhaus, ekki snúningsbursta, þegar mottan eru ryksuguð. Geymdu mottuna innandyra þegar hún er ekki í notkun svo hún endist lengur.
Notaðu STOPP FILT stamt undirlag fyrir mottu til að auka þægindi og öryggi ef mottan er höfð innandyra. Þarf að fara undir alla mottuna.
Varan hefur verið prófuð fyrir notkun á heimilum.
Þú þarft eitt STOPP FILT stamt undirlag (165×235 cm) fyrir þessa mottu. Klipptu til ef þörf er á.
Mottan passar við tveggja til þriggja sæta sófa, en getur einnig gengið með sófum í öðrum stærðum eftir því hvernig þú hefur hana.
Mottan passar undir borðstofuborð og stóla fyrir fjóra, en þú getur auðvitað haft hana hvar og hvernig sem er.
Hægt að nota inni og úti.
Mottan er vélofin.
Mottur með riffluðum eða hörðum brúnum geta skilið eftir sig för á parketgólfi jafnvel þótt stamt undirlag sé notað.
Lengd: | 164 cm |
Heildarþyngd: | 4,46 kg |
Nettóþyngd: | 4,38 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 20,8 l |
Þvermál hvers pakka: | 13 cm |
Aðeins nýjasta útgáfa skjalanna er í boði fyrir niðurhal. Það þýðir að það gæti verið eitthvað öðruvísi í skjalinu sem þú hleður niður og útgáfunni sem fygldi vörunni.
Vörunúmer 204.954.15
Vörunúmer | 204.954.15 |
Vörunúmer 204.954.15
Lengd: | 230 cm |
Breidd: | 160 cm |
Þykkt: | 4 mm |
Flötur: | 3,70 m² |
Yfirborðsþéttleiki: | 1161 g/m² |
Vörunúmer: | 204.954.15 |
Pakkningar: | 1 |
Lengd: | 164 cm |
Heildarþyngd: | 4,46 kg |
Nettóþyngd: | 4,38 kg |
Rúmmál hvers pakka: | 20,8 l |
Þvermál hvers pakka: | 13 cm |
Finndu vöruna í versluninni
1 pakkning(ar) alls