Samantekt
Hafðu það kósí – úti
Motta undir útihúsgögnin þín hentar einstaklega vel til þess að ná fram kósí stemningu í útisvæðinu þínu. Motturnar okkar fyrir útisvæðið eru til í mörgum stærðum, litum og stílum – það er ekkert mál að finna eina sem er fullkomin fyrir þig og þitt útisvæði.
Eiginleikar
Mottur til að nota inni og úti
Við eigum úrval af mottum sem þú getur notað úti, á pallinum eða svölunum, og líka inni. Þær eru gerðar til að þola rigningu, sól og óhreinindi. Ef öll mottan blotnar má hengja hana yfir slá eða rúlla henni lauslega upp og láta hana standa upprétt. Það hjálpar bæði mottunni og gólfinu að þorna fyrr.