RASTPLATS
Motta, flatofin,
170x240 cm, handgert drappað/svart

54.990,-

Magn: - +
RASTPLATS
RASTPLATS

RASTPLATS

54.990,-
Vefverslun: Til á lager
Flatofin dröppuð motta með svörtu grafísku mynstri með beinum línum. Yfirborðið er úr mjúkri bómull. Rauðu brúnirnar gefa mottunni nútímalegt yfirbragð. Hún hentar nánast hvar sem er!

Hugleiðingar hönnuða

Emma Hagman hönnuður

Þegar ég hannaði haustvefnaðarvörurnar valdi ég stórgerð djörf mynstur. Ég byrjaði á að handteikna mynstrið svo það yrði líflegt og náttúrulegt. Það sem mér finnst skemmtilegt við handteiknaðar myndir er að að þær verða oft ósamhverfar. Handahófskennd form, lifandi laufblöð og ýmis form úr náttúrunni veittu mér innblástur. Skandinavísk hönnun er bæði einföld og hlý, náttúruleg og oft djörf. Ég vona að þér þyki þessi vörulína jafn glaðleg og hlýleg og mér.

Form/Hönnunarferli

Mottur ofnar yfir gryfju

Gryfjuvefstóll er eins og nafnið gefur til kynna staðsettur yfir gryfju og viðarramminn er hornréttur fyrir lóðréttan vefnað. Vefarinn situr undir grindinni og stjórnar henni með fótstigum og höndunum og vefar mottur með flóknu mynstri og hönnun. Þessi uppsetning gerir honum kleift að vinna bæði ofan og neðan frá rammanum og ná mjög þéttum vefnaði. Hver motta er listaverk sem prýðir hvaða heimili sem er og það tekur um tvo til þrjá daga að vefa hana.

Efni

Hvað er ull?

Ull er hentugt efni sem kemur venjulega af kindum. Óunnin ull er þvegin og síðan spunnin í garn. Ullarmottur eiga marga kosti. Þær eru mjúkar, hlýjar, það er þægilegt að ganga á þeim og þær endast líka vel. Þær eru líka blettavarðar, þar sem ullin inniheldur náttúrulega olíu sem hrindir frá óhreinindum. Sem þýðir að óhreinindin halda sig á yfirborðinu en fara ekki inn í mottuna. Allar ullamottur fara úr hárum - sumar meira en aðrar - ryksugaðu þær reglulega til að hindra að laus hár berist út um allt.


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X