Nýtt
DOFTRIPS
Garðkanna,
1.5 l, ryðfrítt stál

2.990,-

Magn: - +
DOFTRIPS
DOFTRIPS

DOFTRIPS

2.990,-
Vefverslun: Til á lager
Langur og mjór stúturinn á vatnskönnunni er fullkominn til að vökva lítil spírufræ eða þéttvaxnar plöntur – vandlega og nákvæmlega. Hafðu hana til sýnis sem fallega áminningu um að það sé kominn tími til að vökva.

Hugleiðingar hönnuða

Matilda Lindstam Nilsson, hönnuður

„Þegar þú sáir fræjum eða gróðursetur græðlinga er mikilvægt að geta vökvað rétt. Því var fyrsta hugsun mín við hönnun DOFTRIPS garðkönnunnar að hún þyrfti að vera með löngum og mjóum stút. Ég vildi líka skapa þá blekkingu að stúturinn héldi áfram í gegnum könnuna og myndaði handfangið í flæðandi formi sem er innblásið af rennandi vatni. Ég vona að þú hafir gaman af því að horfa á og nota könnuna og að hún gerir heimaræktunina ánægjulegri.“

Form/Hönnunarferli

Byrjaðu vorið með DOFTRIPS

Vorið færir með sér nýtt upphaf. Með DOFTRIPS línunni viljum við fanga þá tilfinningu með ljósum pastellitum og vörum sem eru bæði hagnýtar og til skrauts – og hvetja þig til að prófa þig áfram og upplifa gleðina sem fylgir ræktun, jafnvel þótt plássið heima sé lítið. Þetta þarf ekki að vera flókið og þú getur byrjað smátt. Þannig að hvort sem þú vilt endurraða blómapottum og vösum, sá fræjum, gróðursetja græðlinga eða styðja við sístækkandi plöntu þá erum við með allt sem þú þarft til að hefjast handa.


Svipaðar vörur

Fleiri vörur úr sömu vörulínu

Vörur sem þú skoðaðir síðast

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X