Tónlist, hljóðbækur og hlaðvörp geta bætt andrúmsloftinu heima og sameinað fjölskylduna. Einnig getur tónlist sett rétta tóninn þegar vinir koma í mat.
Spotify Tap-virknin gerir þér kleift að halda áfram að hlusta þar sem frá var horfið. Þú ýtir einfaldlega á hnappinn og tónlistin heldur áfram.
Spotify Tap-virknin spilar lög sem þér gæti líkað, miðað við hlustunarsöguna þína. Þú getur því uppgötvað nýja tónlist. Ef þú vilt skipta um lag getur þú einfaldlega ýtt aftur á hnappinn.
Fjölhátalarakerfið gerir þér kleift að tengja hátalarann við aðra Bluetooth-hátalara sem eru með þessa virkni. Þá getur þú hlustað á sömu tónlist í fleiri en einum hátalara í einu!
Gerir þér kleift að hlusta á uppáhaldstónlistina eða -hlaðvarpið, hvar sem er. Þú þarft bara símann þinn, tölvu eða annað tæki með Bluetooth-tengingu.
Bluetooth-hátalarinn er einfaldur í notkun og er með góð hljómgæði, sem auðvelt er að betrumbæta enn frekar með fjölhátalarakerfi, sem gerir þér kleift að tengja fleiri Bluetooth-hátalara saman.
Glæsileg hönnun sem fellur vel að heimilinu. Hvort sem hátalarinn er festur á vegg eða settur á standinn tekur hann lítið pláss og verður eðlilegur hluti af heimilinu.
Þú getur parað tvo hátalara fyrir víðóma hljóð og einnig tengt þá við skjá til að fá betri upplifun með skýrum vinstri og hægri hljómi.
Hátalarinn er með þrjár EQ-stillingar svo þú getur fínstillt hljóminn að þínum persónulega smekk og þeirri tónlist sem þú ert að hlusta á.