LURÖY rimlarúm með bogadregnum rimlum fylgir líkamsþyngd þinni og styður við líkamann á meðan botninn hleypir lofti í gegn sem heldur dýnunni ferskri.
Vönduð hönnun, traust smíði og falleg smáatriði með skandinavísku yfirbragði gefa GULLABERG rúmgrindinni fallegt, hefðbundið útlit.
Mjóir en sterkbyggðir fætur úr gegnheilum við skapa létt yfirbragð og auðvelda þér að ryksuga undir rúminu.
Stillanlegur rimlar gera það að verkum að rúmgrindin passar fyrir misþykkar dýnur – án þess að hafa áhrif á útlit rúmsins.
Bættu við GULLABERG rúmfatahirslum sem passa snyrtilega undir rúmgrindina – fullkomið geymslupláss fyrir auka kodda, sængur eða hvað sem þú vilt hafa innan seilingar.
Með rúmgrind, náttborðum og öðrum húsgögnum í GULLABERG línunni færðu heildstætt útlit í svefnherberginu.
Hái höfðagaflinn er með fallegum rákum og með því að setja púða fyrir aftan bakið er þægilegt að halla sér aftur með bók.