74.950,-
74950
Eiginleikar
Rúm fyrir fleira en drauma
NORDLI rúmgrindin er meira en bara þægilegt rúm. Hún er einnig rúmgóð hirsla með sex skúffum sem lokast mjúklega og hljóðlega og vekja því engan. Hentug lausn fyrir fatnað, aukasængur og ljúfa drauma – og tekur lítið pláss.
Hugleiðingar hönnuða
Ola Wihlborg, hönnuður
„Þegar ég hannaði NORDLI línuna hafði ég nútímalega skandinavíska hönnun og snjalla virkni í huga. Þetta byrjaði allt saman með rúmi og náttborði en varð svo að heilli vörulínu. Hvert húsgagn getur staðið eitt og sér en passar svo auðvitað með öðru í línunni. Hvert og eitt húsgagn hefur eiginleika sem leggja áherslu á hagnýtni og gæði. Kommóðan er í einingum sem fást í mismunandi stærðum og gerðum og þú getur raðað saman eins og hentar. Sumar einingarnar henta líka vel í önnur rými, eins og stofuna eða ganginn – jafnvel á skrifstofunni.“
Efni
Hvað er trefjaplata?
Trefjaplata er stöðugt og endingargott efni sem unnið er úr afgöngum frá viðariðnaði. Hún er klædd endingargóðu lagi af málningu eða plastþynnu. Munurinn á mismunandi gerðum af trefjaplötum, eins og HDF og MDF, felst aðallega í þykktinni en einnig hversu höggþolnar þær eru. Þetta ákvarðar hvort við notum þær í rúmgrindur, sófa, eldhúsframhliðar, fataskápahurðir eða eitthvað annað.