LÖKSTAMFLY
Heilsukoddi, hlið/bak,
50x60 cm
Staðsetning í verslun Svefnherbergisvefnaðarvara

1.990,-

1990

Magn: - +
LÖKSTAMFLY
LÖKSTAMFLY

LÖKSTAMFLY

1.990,-
Vefverslun: Til á lager
Heilsukoddinn er þægilegur og rifni minnissvampurinn veitir endingargóða fjöðrun. Hægt er að aðlaga hann að svefni flestra.

Gæði

Koddi með þig í huga

Hjá IKEA eru gæði vörunnar alltaf í fyrirrúmi og koddar eru þar engin undantekning. Metnaðarfullt vöruþróunarteymið okkar hlustar á það sem viðskiptavinir okkar hafa að segja og vinnur stöðugt að því að bæta vörurnar sem við seljum. Þetta felur í sér ítarlegar prófanir á þægindum og endingu. Við pössuðum einnig upp á að nota efni sem endast vel og veita þér þægilegan og góðan svefn um ókomin ár.

Efni

Umhirða heilsukodda

Með smá umhirðu geturðu lengt endingu heilsukoddans og haldið honum ferskum. Það er mikilvægt að þú þvoir ekki svampinn þar sem það hefur á hrif á gæði og virkni koddans. En þú getur alltaf þvegið áklæðið Fjarlægðu áklæðið og þvoðu það í vél á 40°C. Þurrkaðu á lágum hita í þurrkara, hámark 60°C.

Eiginleikar

Aukin þægindi með heilsukodda

Góður svefn er lykilatriði þegar kemur að því að nýta vökustundirnar til fulls. Þegar höfuð og háls hvíla þægilega á koddanum verður lúrinn enn betri. En fólk hefur ólíkar þarfir. Sumt fólk sefur á bakinu, annað á hliðinni og svo er líka hægt að skipta oft um stellingu yfir nóttina. Þess vegna eru heilsukoddarnir í ólíkum stærðum og gerðum, svo við getum öll sofið eins og ungabörn og vaknað endurnærð.


Bæta við vörum

Aðrir keyptu líka

Svipaðar vörur

Vörur sem þú skoðaðir síðast