Kertastjakinn er munnblásinn og því er hver og einn einstakur.
Brennslutíminn er langur sem þýðir að þú nýtur kertisins lengur.
Að minnsta kosti 75% af vaxinu í þessari vöru er endurnýjanlegt vax unnið úr plöntum.
Safaríkur og kryddaður ilmur sem kallar fram notalegar minningar um löng sumarkvöld í blómlegum garði.
Þéttur ilmur af rósum og nellikum skapar rómantíska tilfinningu og setur persónulegan svip á heimilið.
Fallegt sanserað glas með glitrandi áferð sem er hannað af Lisa Hilland. Það veitir rómantískt og hlýlegt yfirbragð og er auðveld leið til að skapa hversdagslegan glæsileika.
Þegar kertið er brunnið niður getur þú hreinsað og endurnýtt glasið, til dæmis til að geyma skartgripi og aðra smáhluti – eða sem fallegan kertastjaka fyrir sprittkerti.