LED lýsing notar allt að 85% minna af orku og endist um tíu sinnum lengur en hefðbundin glópera.
Hægt er að koma vörunni fyrir hvar sem er þar sem hún gengur fyrir rafhlöðum og þarf ekki að vera tengd við rafmagn.
Öruggur kostur fyrir heimili þar sem búa börn eða gæludýr þar sem hægt er að nota LED kertin hvar sem er án þess að eldhætta skapist.
Kertin færa rýminu hlýju og notalegheit, hvort sem það er á heimilum eða kaffihúsum og veitingastöðum.
LED kertin passa í kertastjaka og luktir í vöruúrvali okkar.
Þú virkjar innbyggða tímastillinn með takka undir kertinu. Tímastillirinn kveikir á LED kertinu á sama tíma á hverjum degi – og slekkur aftur á því eftir þrjár til sex klukkustundir, eftir því sem við á.
LED kubbakertið logar í um 140 klukkustundir, sem samsvarar 21-23 dögum á 6 klst. tímastillingunni, en 43-46 dögum á 3 klst. stillingunni.
Notalegur, flöktandi loginn líkist alvöru loga og kertið er raunverulegt þar sem yfirborðið er úr vaxi – þú sleppur þó við sót og lekandi vax.