1.590,-
1590
Hvernig á að velja
Hvaða planta hentar mér og heimilinu mínu?
Frá tilkomumiklum stilkum og íburðarmiklum laufblöðum til þyrnótta kaktusa og fagurra blóma. Plöntur gera heimilið persónulegra og líflegra – og þú finnur plöntu sem hentar þér og heimilishögum þínum hjá okkur. Hugsaðu út í tegund, stærð og hvernig umhirðu plantan þarf á að halda og hvort henni sé ætlað að vera úti eða inni – ásamt því hvort hún þrífist best í sólskini eða skugga. Notaðu umhirðuleiðbeiningarnar okkar til að finna réttu plöntuna fyrir þig svo hún nái að þrífast. Að lokum getur þú valið blómapott sem þér og nýju plöntunni líkar.
Coordination
Leyfðu laufunum að njóta sín
Skapaðu þína eigin gróðurvin með grænum og vænum plöntum. Eða fáðu frá þeim innblástur til að skapa. Plöntur og blóm eru góðir meðleigjendur – ný planta færir þig nær náttúrunni.
Eiginleikar
Þyrnóttir og lífseigir
Þessir kaktusar eru lífseigir og vanir óvægum og þurrum aðstæðum. Í náttúrunni verja broddarnir kaktusana fyrir dýrum, mynda skugga og safna saman dögg sem drýpur ofan í jörðina þar sem ræturnar draga vatnið í sig. Ekki láta blekkjast af þyrnóttu yfirborðinu – þetta eru traustir herbergisfélagar sem standa með þér ár eftir ár. Einn helsti kostur kaktusa er að þeir þola vel að vera einir þegar þú skreppur í frí.