4.490,-/2 stykki
4490
Framhliðin er úr plasti og því er ramminn öruggur.
Ef þú vilt breyta til er auðvelt að skipta um mynd í rammanum.
Eftir Irika Sandström og Sophie Wiking Ekman.
Hugleiðingar hönnuða
Irika Sandström og Sophie Wiking Ekman, hönnuðir
„Þegar villt náttúran er sett inn í ramma þess mannlega verður útkoman oft mjög spennandi. Að vinna með þessar myndir af mismunandi blómum og blómaskreytingum hefur verið algjör draumur. Við fengum innblástur frá gróðri sem má finna í görðum og sveitum Suður-Svíþjóðar – og lönguninni að sjá hvernig hann kemur út í gegnum linsu myndavélar. Þessar myndir eru leið til að færa náttúruna inn á heimilið og gætu jafnvel vakið upp löngun hjá einhverjum til að byrja að stunda garðyrkju!“
Efni
Hvað er trefjaplata?
Trefjaplata er stöðugt og endingargott efni sem unnið er úr afgöngum frá viðariðnaði. Hún er klædd endingargóðu lagi af málningu eða plastþynnu. Munurinn á mismunandi gerðum af trefjaplötum, eins og HDF og MDF, felst aðallega í þykktinni en einnig hversu höggþolnar þær eru. Þetta ákvarðar hvort við notum þær í rúmgrindur, sófa, eldhúsframhliðar, fataskápahurðir eða eitthvað annað.