10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Fæturnir lyfta sófanum upp af gólfinu, gera hann léttari og auðvelda þrif.
Í öllu efni sófans er að minnsta kosti 90% endurunnið pólýester og að minnsta kosti 70% endurunnið pólýester í vattinu.
Mjúka og notalega Johanneshov áklæðið er með fallegri áferð og fíngerðum gljáa. Vefnaðurinn gerir efnið endingargott og heldur bæði útlitinu og þægindunum í mörg ár.
Þægindi fyrir alla fjölskylduna – rúmgóður sófi til að sökkva sér í með stílhreinu útliti og stórum púðum, sem gera hann að augnayndi í hvaða herbergi sem er.
Einingarnar er hægt að tengja saman á mismunandi vegu. Notaðu tvær sætiseiningar fyrir minni rými eða búðu til stærra setusvæði með mörgum sætiseiningum, legubekkjaeiningum, horneiningum og skemlum.
Pokagormar og viðarrimlar veita þægilega tilfinningu þegar þú sest og hjálpa púðunum að ná aftur sínu fyrra formi eftir notkun.
Rúmgott svæðið til að sitja á og aukin dýpt sætisins skapa faðmandi tilfinningu með nægu plássi fyrir alla fjölskylduna til að slaka á saman.
Áklæði sem auðvelt er að taka af og má fara í þvott einfalda þér að halda sófanum fallegum og ferskum.
Vandlega valin, mjúk efni með góðri áferð gera sófann sérstaklega aðlaðandi og þægilegan að sitja í.
Einn armpúði fylgir með hverri einingu með örmum.