Fótstigið auðveldar þér að sitja í þægilegri stellingu.
Ekkert bak þýðir að þú getur setið hvoru megin sem er á barstólnum og geymt hann undir barborðinu þegar hann er ekki í notkun.
Barstóllinn er stöðugur, úr gegnheilum gúmmívið, og hver stóll er einstakur.
Falleg áferð og sýnilegir kvistir draga fram náttúrulega fegurð viðarins.
Gúmmíviður er þekktur fyrir styrk og endingu og barstóllinn getur því enst árum saman.
Stóllinn er hannaður og smíðaður til að þola mikla daglega notkun í almenningsrýmum þar sem umgangur er mikill, svo sem á veitingastöðum, kaffihúsum, kaffistofum, í mötuneytum, vinnurýmum og á öðrum fjölförnum stöðum.