Eftirgefanlegur svampur í stólbakinu lagar sig að líkamanum og styður við bakið, jafnvel þótt þú breytir aðeins um stöðu.
Þykkt svampsæti gerir þér kleift að sitja heillengi á þægilegum stólnum.
Gegnheilir viðarfætur í beinhvítu, með duftlökkuðum málmi efst. Flottir og stöðugir.
Passar vel við TONSTAD borðin þar sem einnig er áhersla á hágæða efni og vönduð smáatriði.
Hugleiðingar hönnuða
Ola Wihlborg, hönnuður
„TONSTAD borð og stólar eru af sömu gæðum og úr sama efnivið og önnur húsgögn í vörulínunni. Borðin eru stöðug og stólarnir eru þægilegir svo hægt sé að sitja á þeim löngum stundum, hvort sem það er við matarborðið eða föndur og heimavinnu. Áhersla er lögð á falleg smáatriði; ávöl hornin og fallega sveigður viðarspónninn. Burstuð eikin og mött áferð dregur fram náttúrulega fegurð viðarins. Ég vona að sem flestir geti notið þessara gæðahúsgagna.“