Hægt að stafla til að spara pláss.
Þú situr þægilega í rúmgóðu og rúnnuðu sæti með bakstuðningi.
Hengdu stólinn á borðið til að auðvelda þrif.
Stóllinn er hannaður og smíðaður til að þola mikla daglega notkun í almenningsrýmum þar sem umgangur er mikill, svo sem á veitingastöðum, kaffihúsum, kaffistofum, í mötuneytum, vinnurýmum og á öðrum fjölförnum stöðum.
Með glærlökkuðu yfirborði sem auðvelt er að þrífa og halda við.
Þú getur ýtt stólunum undir borð eða staflað saman fimm stólum til að spara pláss þegar þeir eru ekki í notkun.