Saga
Við í IKEA viljum að útihúsgögn séu jafn þægileg og þau eru endingargóð. Þess vegna blönduðum við saman hefðbundinni og nútímalegri tækni þegar við hönnuðum TEGELÖN. Niðurstaðan var garðstóll með sömu þægindi og innistóll. Fullkominn fyrir langar grillveislur.
Plast, viður og stál henta vel í útihúsgögn en án mjúkra púða er ekki endilega gott að sitja mjög lengi. Hvernig er hægt að hanna endingargóð útihúsgögn fyrir svalir og palla sem eru eins þægileg og bólstruð innihúsgögn? Phuong Thanh Nguyen verkfræðingur, ásamt TEGELÖN teyminu, fann lausn á þessu með því að sameina gamla handverkstækni og nútímaefnivið.
Langar samverustundir undir berum himni
TEGELÖN sætið og bakið eru úr ofnu reipi. Það er aldagömul tækni, en oftast hefur efniviðurinn verið reyr eða aðrar náttúrulegar trefjar – efni sem endast ekki mjög vel í regni og sól. Í staðinn ákvað teymið að nota reipi með gúmmíkenndum kjarna. „Það þolir alls konar veður og stenst nútímakröfur um endingu og þægindi. Það er bæði viðhaldsfrítt og sveigjanlegt ásamt því að styðja vel við líkama – af öllum stærðum og gerðum,“ segir Phuong.
Flæði á milli inni- og útisvæðisins
Phuong og teymið prófuðu ýmsar leiðir til að flétta reipið og niðurstaðan var þessi, með engum götum. „Við notum líka sporöskjulaga reipi í stað hringlaga. Smáatriði sem gera stólinn mun þægilegri.“ „TEGELÖN stóllinn er flottur og passar bæði við inni- og útihúsgögn. Þar af leiðandi verður meira flæði milli úti- og innisvæðisins.“