FRÖSÖN/DUVHOLMEN
Sessa, úti,
44x44 cm, dökkgrátt

2.450,-

Magn: - +
FRÖSÖN / DUVHOLMEN
FRÖSÖN/DUVHOLMEN

FRÖSÖN / DUVHOLMEN

2.450,-
Vefverslun: Til á lager
Laus áklæði gera þér kleift að endurnýja útihúsgögnin að vild. Áklæðin eru úr endurunnum PET-flöskum og lituð á umhverfisvænni hátt, því endist liturinn lengur í sólinni.
FRÖSÖN/DUVHOLMEN sessa, úti

Sólglaðir púðar

Þú tekur umhverfisvæna ákvörðun þegar þú velur FRÖSÖN púðaver fyrir útisvæðið. Pólýesterefnið er úr endurunnum PET-flöskum og hefur verið litað á þann hátt að liturinn endist lengur því hann verður hluti af þráðunum. Efnið hefur verið prófað í sjóðandi heitri sól Ástralíu og sandstormum Sádí Arabíu. Við erum viss um að laus áklæðin munu halda sér vel um ókomna sumartíð.

Þegar vorið gengur í garð og tími er kominn til að færa púðana út á útihúsgögnin eru þeir ekki alltaf eins og þig minnti. Litirnir gætu hafa fölnað og efnið slitnað eftir sterka útfjólubláa geisla sólarinnar, regnið, vind, ryk og óhreinindi. Það er afar eðlilegt að slíkt gerist en það þýðir þó ekki að við ættum að sætta okkur við það. Við hjá IKEA fögnum nýjum áskorunum og leituðum að nýju efni, óhefðbundnum framleiðsluaðferðum og skilvirkari prófunum. Þegar við hófumst handa við að búa til FRÖSÖN púðaverin ákváðum við að nota pólýester úr endurunnum PET-flöskum og tiltölulega nýja litunaraðferð sem gefur af sér betri gæði og betri endingu utandyra heldur en hefðbundin litunaraðferð.

Liturinn verður hluti af efninu

Anton Löfstedt vinnur með vefnað í IKEA og útskýrir aðferðina sem notuð er við að lita gerviþræði á borð við pólýester, akrýl og nælon. „Með þessari aðferð bætum við litarefninu við efnið áður en þráðurinn er framleiddur. Þannig verður litarefnið hluti af þræðinum og festist betur heldur en í hefðbundinni litun þar sem liturinn er aðeins á yfirborði þráðarins." Það er einnig umhverfisvænna að lita og framleiða þráðinn á sama tíma og sleppa þrepi í framleiðslunni. Þannig drögum við úr vatnsnotkun um 80% og litarefni 20%, miðað við hefðbundna litunaraðferð. Þetta eru mikilvægar tölur sem sýna fram á hvernig ný aðferð getur skipt miklu máli. „Í dag eru sífellt fleiri IKEA vörur úr pólýester litaðar á þennan hátt." Segir Anton.

Prófanir á veðuraðstæðum

Til að prófa endingu á lituðu pólýester settum við það í sólina. Á sjö mánuðum voru einhver púðaver sett út á verönd hjá skrifstofum okkar í Sydney, í mikinn raka og sterka sól. Á sama tíma sentum við nokkur púðaver til fjölskyldu í Sádí Arabíu þar sem þau þurftu að þola bæði sól og sandstorma. Catarina Vannfält er efnaverkfræðingur og hefur rannsakað útkomuna. „Þá sá örlítið á púðaverunum þegar við fengum þau til baka en eftir einn þvott voru púðaverin fersk á ný og litirnir litu mjög vel út." Segir Catarina. Því sjáum við að með endurunnu efni og litartækni sem notar minna af vatni og lit er FRÖSÖN eitt skref í áttina að því að draga úr umhverfisáhrifum. Að auki hefur það jákvæða eiginleika fyrir heimilið þitt. „Með betri litunaraðferð sem dregur úr áhrifum sólar á efni ásamt lausu áklæði sem hægt er að þvo líta púðarnir betur út í lengri tíma." Útskýrir Catarina.

Sjá meira Sjá minna

Efni

Hvað er endurunnið pólýester?

Þegar við framleiðum vörur úr endurunnu pólýester fá PET-flöskur og annað úr pólýester nýtt líf í hlutum eins og vefnaðarvörum, kössum, eldhúsframhliðum og jafnvel ljósum. Þegar þú notar þessar vörur færð þú sömu gæði og virkni og frá vörum úr nýju pólýester. Að sjálfsögðu eru þessar vörur jafn hreinar og öruggar og aðrar vörur. Það sem er samt allra best er að þú stuðlar einnig að minni hráefnisnotkun.


Bæta við vörum

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X