49.950,-
49950
Hugleiðingar hönnuða
Ola Wihlborg, hönnuður
„Við notum matarborðið sífellt meira og til þess að geta notið góðra máltíða og ljúfra samverustunda er nauðsynlegt að hafa stól sem gott er að sitja í. Markmiðið með TEGELÖN var að hanna slíkan stól til að hafa á útisvæðinu. Ég ákvað að vera með breiðari setu og bak í stað arma. Lögunin er glæsileg og aðlaðandi og þú situr mjúklega og þægilega á handofnum reipunum. Ég vona að stólinn komi til með að þjóna þér á löngum samverustundum með fólkinu þínu.“
Gæði
Þægilegra útilíf
Hvernig er hægt að hanna endingargóð útihúsgögn fyrir svalir og palla sem eru eins þægileg og bólstruð innihúsgögn? Teymið að baki TEGELÖN útihúsgögnum sameinuðu hefðbundið handverk með nútímalegu hráefni. Stóllinn er með sæti og baki úr ofnu reipi sem gefur örlítið eftir. Það færir honum áferð og útlit í stíl við innihúsgögnin hvað varðar þægindi og yfirbragð.