Gardínuborðinn auðveldar þér að plísera gardínuna með RIKTIG gardínukrókum.
Gardínur með gardínuborða sem gerir þér kleift að hengja þær beint á stöngina með þar til gerðum vösum eða flipum. Þú getur líka hengt gardínuna á gardínubraut með hjólum og krókum.
Með hjólum og krókum skapast yfirleitt formlegra og fágaðra yfirbragð þar sem ekki sést í festingarnar.
Gardínurnar hleypa smá birtu í rýmið og koma í veg fyrir glampa á sjónvarp og tölvur. Þær veita að auki næði þar sem erfitt er að greina form og ljós inni þegar þú stendur fyrir utan.
Gardínur geta dregið úr hita frá sólinni og hitatapi vegna dragsúgs frá óþéttum gluggum. Hengdu þær nálægt glugganum, frá gólfi og upp í loft og láttu þær ná yfir gluggakarmana á hliðunum til að lágmarka glufur. Þannig nærðu sem bestum árangri.