Eiginleikar
Hálfmyrkvunarefni
Efnið myrkvar rýmið en hleypir inn smá dagsbirtu þegar það er bjartara úti. Það kemur í veg fyrir glampa á sjónvarp og skjái og veitir notalegt næði þar sem fólk sér ekki inn á daginn og á næturna. Erfitt að greina útlínur og ljós utan frá.
Efni
Hvað er pólýester?
Pólýester er endingargott, einangrandi efni sem þornar hratt og er tilvalið í vefnað eins og fyllingu í kodda, sængur og húsgögn. Efnið er unnið úr hráolíu sem er takmörkuð auðlind. Þar sem IKEA vill leggja sitt að mörkum í að draga úr notkun hráolíu erum við smám saman að skipta yfir í endurunnið og rekjanlegt pólýester sem meðal annars er unnið úr PET-flöskum. Það sem er gott við pólýester er að það er hægt að endurvinna það aftur og aftur án þess að það tapi eiginleikum sínum.