Samantekt
Klassískt uppáhald úr 50% endurunninni bómull
GURLI púðaverið er sígilt og hefur lengi verið í uppáhaldi hjá mörgum. Það er úr 100% bómull, þar af minnst 50% endurunninni. Það er mjúkt, endingargott og má þvo í vél. Það fæst í mörgum litum, allt frá skærum og mildum litatónum yfir í klassíska hvíta og ólitaða bómull – og því er auðvelt að para það við rendur, doppur og blómamynstur. Vantar þig notalegheit á heimilið? Notaðu með DAGGKÅPOR eða HOLMVI teppum.