Góðar samverustundir eru nauðsynlegar – oft er nóg að slappa af saman og gera ekkert. VIMLE sófalínan er fullkomin til þess. Lágar og djúpar einingarnar raðast saman á fjölbreyttan hátt – og það er auðvelt fyrir börnin eða gæludýrin að klifra upp í sófa til þín. Svo er líka falin hirsla í legubekknum, til dæmis fyrir leikföng. Hægt er að velja um nokkur áklæði.
10 ára ábyrgð á sófum
Daglegt heimilislíf gerir miklar kröfur til sófa og hægindastóla. Húsgögnin okkar hafa gengist undir margvíslegar prófanir til að tryggja að þau standist stranga gæða- og endingarstaðla okkar og standist ströngustu kröfur sem gerðar eru til húsbúnaðar. Því getum við boðið upp á 10 ára ábyrgð sem nær yfir galla í efni og framleiðslu á sófagrindum, sessum og bakpúðum í sófunum, hægindastólunum, svefnsófunum og skemlunum okkar – og 25 ára ábyrgð fyrir einstaka vörur. Ábyrgðin gildir samkvæmt ábyrgðarskilmálum
Kynntu þér ábyrgðarskilmálana
Hannaðu þinn eigin sófa með teikniforritunum okkar