IKEA

Mælingaþjónusta fyrir eldhús

Það er ekki flókið að mæla eldhúsið en það er mjög mikilvægt að málin séu rétt því þau eru grunnurinn að allri hönnunni. Ef þú vilt aðstoð þá bjóðum við upp á mælingaþjónustu sem tryggir að málin séu rétt tekin og skráð niður og þú færð hnitmiðiðaða eldhúsráðgjöf á staðnum. Þjónustan er ókeypis.

Fyrir og á meðan mælingaþjónusta fyrir eldhús stendur yfir

  1. Bókaðu mælingar á netinu eða sendu tölvupóst á teikningar@ikea.is

    Pantaðu tíma hér
     
  2. Gakktu úr skugga um að rýmið sé tilbúið til mælingar og að ekkert sé fyrir sem gæti truflað mælingu.
     
  3. Gert er ráð fyrir að heimsóknin standi yfir í hámark 40 mínútur. Starfsmaður tekur myndir og safnar öllum nauðsynlegum upplýsingum um rýmið saman, svo sem stærð rýmis, skoðar veggi/horn og staðsetningu hurða, glugga, burðarbita o.s.frv.

  4. Skoðaðu hugmyndir og sæktu innblástur fyrir draumaeldhúsið á vefnum eða í versluninni og fylltu út hönnunarbeiðni.

    Fylla út hönnunarbeiðni

  5. Teiknari sendir þér tillögu innan 5 virkra daga frá heimsókn. Hann fer með þér yfir teikninguna og með ykkar samvinnu verður draumarýmið að veruleika. Þegar endanleg teikning liggur fyrir útbýr teiknarinn lokaverð sem þú notar til að ganga frá kaupum.
Mælingaþjónusta felur ekki í sér eftirfarandi:
  • Ítarlega ráðgjöf um innanhússhönnun
  • Niðurrif á skápum til að kanna ástand lagna eða rafmagns
  • Ráðgjöf um viðbótarvinnu

Ertu með fyrirtæki?

 

Við erum þér innan handar, þér að kostnaðarlausu!

Bókaðu ráðgjöf hér

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X