Hagkvæmt og endingargott, hannað til að þola að minnsta kosti 10 ár af daglegri notkun. Lestu meira í ábyrgðarbæklingnum.
Innskráðir notendur geta skráð sig og fengið tilkynningu þegar varan kemur aftur.
Hagkvæmt og endingargott, hannað til að þola að minnsta kosti 10 ár af daglegri notkun. Lestu meira í ábyrgðarbæklingnum.
Borðplata með kringlóttri handlaug er snyrtileg og einföld lausn sem setur svip á herbergið. Auðvelt er að para hana við önnur húsgögn.
Skúffuframhlið úr þili eykur hefðbundið yfirbragð.
Kringlótt handlaugin myndar ákveðna andstæðu við ferhyrnda lögun húsgagnanna. Pláss fyrir tannbursta, sápudælu og minni hluti við hliðina á handlauginni.
Nútímaleg framleiðslutækni ver skúffurnar gegn rakaskemmdum. Þynnan liggur lóðrétt á spónaplötunni svo ekkert vatn kemst að óvörðum brúnum.
Veggfestingin auðveldar þrif á gólfum þar sem engir fætur eru fyrir.
Skúffurnar renna mjúklega og eru með skúffustoppara. Hægt er að draga þær alveg út án þess að þær detti úr skápnum.
Skúffan lokast hljóðlega í hvert skipti með ljúfloku. Þú þarft því ekki að óttast að klemma fingur.
Neðri skúffan er djúp og með pláss fyrir stærri hluti eins og handklæði og hárþurrkur. Efri hillan hentar vel fyrir minni hluti eins og bursta, krem, úðabrúsa og aukahluti.
Þú nýtir rýmið í skúffunum betur því snjöll hönnun vatnslássins leiðir rörin aftast í skápinn.
Auðvelt er að setja skúffurnar saman.
Með síunni sparar þú vatn og orku í hvert skipti sem þú skrúfar frá blöndunartækinu.
GODMORGON fætur seljast sér.
Vinsamlegast athugið að það þarf silíkonþéttiefni og stingsög til að festa handlaugina við borðplötuna. Selt sér.
Höldur fylgja.
Botnventill og vatnslás innifaldir.
Blöndunartæki og botnventill innifalin.
Vaskurinn þolir snertingu við flest efni, nema sterkar sýrur og sterk alkalísk efni.
Húsgagnið þarf að festa við vegg með meðfylgjandi veggfestingu.
Við mælum með því að þú notir fætur undir innréttinguna ef þú ert ekki viss um burðarþol veggjanna á baðherberginu.
Notaðu meðfylgjandi mót áður en handlaugin er fest í borðplötuna.
Látið silíkonið undir borðplötunni þorna í 2 klukkustundir áður en vaskurinn er settur í.
Það þarf tvo til að setja þessa vöru saman.
Tryggið að veggirnir á baðherberginu þoli þyngd húsbúnaðar sem hengdur er upp. Leitaðu ráða hjá fagmanni ef þú ert ekki viss.
IKEA of Sweden/H Preutz/N Karlsson
Breidd: 82 cm
Dýpt: 49 cm
Hæð: 75 cm
Þrífðu með mildu sápuvatni.Borðplata: Þurrkaðu með hreinum klút.Vaskaskápur með tveimur skúffum: Þurrkaðu með hreinum klút.Vaskaskápur m/handl., 40, og borðp.: Bleytu skal þurrka upp eins fljótt og mögulegt er svo að það myndist ekki blettur.Handlaug á borðplötu: Ekki nota hreinsiduft, stálull, hörð eða oddhvöss áhöld sem geta rispað yfirborð vasksins.Borðplata: Límtré er viðkvæmt fyrir tærandi kemískum efnum eins og uppleysiefnum eins og klór eða acetón.
Vaskaskápur með tveimur skúffum/handlaug á borðplötu
Efnið í vörunni er hægt að endurvinna. Kynntu þér reglur um endurvinnslu í þínu nágrenni.
Blöndunartæki, hátt
Með því að framleiða blöndunartæki og sturtur þannig að þau hjálpi fólki við að minnka vatns- og orkunotkun stuðlum við að sjálfbærara heimilislífi.
Vaskaskápur með tveimur skúffum
Hirsla: Spónaplata, Plastþynna (a.m.k. 90% endurunnið), Plastþynna (a.m.k. 90% endurunnið), Plastþynna
Framhlið: Trefjaplata, Plastþynna (a.m.k. 90% endurunnið), Samlímt
Skúffuhliðar/ Skúffubak: Gegnheilt birki, Glært akrýllakk
Skúffubotn: Spónaplata, Melamínþynna, Plastþynna
Borðplata
Trefjaplata, Plastþynna, Háþrýstimelamínhúð
Handlaug á borðplötu
Vatnslás/ Skinna: Pólýprópýlenplast
Skrúfa: Látún, Krómhúðað
Sía/ Stoppari/ Hnúður: Ryðfrítt stál
Pakkning: Gervigúmmí, Pólýetýlensvampur
Skaft: Asetalplast
Grunnefni: Pólýester/mulinn marmari, Pólýester
Blöndunartæki, hátt
Látún, Krómhúðað
1 x GODMORGON vaskaskápur með tveimur skúffum
Vörunúmer: 00387643
Uppselt
Sjálfsafgreiðslulager | |
Gangur | Bil |
59 | L |
1 x KATTEVIK handlaug á borðplötu
Vörunúmer: 30358941
Uppselt
Sjálfsafgreiðslulager | |
Gangur | Bil |
59 | J |
1 x TOLKEN borðplata
Vörunúmer: 50354701
Sjálfsafgreiðslulager | |
Gangur | Bil |
59 | N |
1 x VOXNAN blöndunartæki, hátt
Vörunúmer: 60343057