Tilvalið ef þú vilt skapa nútímalegt en óheflað yfirbragð sem færir rýminu hlýlegt andrúmsloft. Mynstrið minnir á steinsteypu og þynnan er bæði endingargóð og auðveld í umhirðu.
Grunnskápur með þremur skúffum hentar fyrir minnstu áhöldin og stóra potta. Með skúffum sem hægt er að draga nánast alveg út og því færðu góða yfirsýn og auðvelt aðgengi að innihaldinu.
Opin vegghilla nýtir vel plássið yfir borðplötunni. Tilvalinn staður fyrir borðbúnað, áhöld og aðra hluti sem þú notar oft.
Eldhúsið er hannað fyrir ferðaspanhellu og/eða örbylgjuofn. Taktu tækið bara úr sambandi og settu það til hliðar til að búa til meira pláss fyrir matargerðina.
Bættu við ferðaspanhellu til að búa til góða eldunaraðstöðu. Auðvelt að koma fyrir í skáp eða hengja á snaga þegar hún er ekki í notkun, til að rýma til á borðinu fyrir aðra hluti. Seld sér.
Svæðið við hlið grunnskápsins með skúffum er hentugt fyrir þvottavél ef þú vilt búa til þvottaaðstöðu með hentugri hirslu fyrir þvottaefni.
Bættu við ENHET aukahlutum til að nýta hirsluna til hins ýtrasta. Engin þörf á að bora! Selt sér.
ENHET slá fyrir snaga, ENHET snagar og SKATTÅN ílát auðvelda þér að nýta hvern sentímetra undir opna ENHET skápnum til að geyma þurrkur, hnífapör og kryddjurtir.
ENHET hangandi hilluinnlegg gerir þér kleift að nýta betur plássið á milli hillna í ENHET hillueiningum. Tilvalið til að koma skipulagi á hluti á borð við espressóbolla, krukkur, hárþurrkur eða handklæði.
Einstaki blindnaglinn auðveldar samsetningu og festingarnar eru varla sjáanlegar.
ENHET hurðir og skúffuframhliðar með steypuáferð passa mjög vel með EKBACKEN borðplötu með ljósgrárri steypuáferð.
12,5 cm háir ENHET fætur setja grunnskápinn í þægilega hæð og bæta stöðugleika hans.
Eftir þínu höfði! Skiptu á litnum á skápunum og áferðinni á borðinu og framhliðunum til að búa til nútímalegt, sígilt, stílhreint eða litríkt útlit sem höfðar til þín.
Bættu við skipulagshirslum á borð við hnífaparabakka og diskastanda til að fullnýta og koma skipulagi á plássið í skápunum og skúffunum, selt sér.
HACKÅS hnúðar og höldur eru slétt viðkomu og færa heimilinu nútímalegt yfirbragð.
Þynnri borðplata með beinum köntum og plasthúðuðu yfirborði með steypuáferð færir eldhúsinu hlýlegt yfirbragð. Styttu plötuna í lengd sem þér hentar og notaðu meðfylgjandi kantlista á kantana.
Með smærri vaski færðu meira vinnupláss. Úr ryðfríu stáli – sem er hreinlegt, endingargott og slitsterkt efni.
SKYDRAG ljósasett er hannað fyrir ENHET línuna – tilvalið bæði sem vinnulýsing yfir borðplötu og til að búa til ákveðna stemningu í eldhúsinu. Með TRÅDFRI spennubreyti og þráðlausum ljósdeyfi getur þú auðveldlega kveikt, slökkt og deyft lýsinguna.
Grunnskápur fyrir vask er hentugur staður til að flokka rusl og að aftan er pláss fyrir rör og lagnir.
Hægt að bæta við HÅLLBAR flokkunarfötum. Með því að hafa flokkunarfötur undir vaskinum kemur þú upp snyrtilegri flokkunaraðstöðu.
10 ára ábyrgð. Ábyrgðarskilmála er að finna á vefnum okkar, IKEA.is.
Þarf að festa við vegg af öryggisástæðum. Veggir eru mismunandi og þurfa mismunandi skrúfur og festingar. Notaðu skrúfur og aðrar festingar sem henta veggjum heimilisins, seldar sér.
Skrúfur til að festa borðplötuna á grunnskápana eru innifaldar.
Skrúfur til að festa saman grunnskápa innifaldar.
IKEA of Sweden/Mikael Warnhammar/IKEA of Sweden/E Lilja Löwenhielm/J Löfgren/J Pettersson/IKEA of Sweden/F Cayouette
Þurrkaðu með hreinum klút.Vaskur, einfaldur: Þurrkaðu með hreinum klút.Borðplata: Þurrkaðu með hreinum klút.Hurð/skúffuframhlið: Þurrkaðu með hreinum klút.Þrífðu með mjúkum rökum klút og mildu hreinsiefni án svarfefna eða sápu, ef nauðsyn krefur.Vaskur, einfaldur: Notaðu ekki svarfefni, stálull eða hörð eða beitt áhöld sem geta rispað ryðfrítt yfirborðið.Borðplata: Þurrkaðu strax upp bleytu og óhreinindi með mjúkum klút vættum með uppþvottalegi eða sápu, til að koma í veg fyrir varanlega bletti á borðplötunni.
Vaskur, einfaldur
Efnið í vörunni er hægt að endurvinna. Kynntu þér reglur um endurvinnslu í þínu nágrenni.
Blöndunartæki
Vatn er dýrmæt auðlind og okkur ber að varast sóun á því. Þess vegna eru allir kranar og allar sturtur hjá okkur með búnaði sem sparar vatn og orku án þess að draga úr krafti. Gott fyrir okkur og umhverfið.
Með því að framleiða blöndunartæki og sturtur þannig að þau hjálpi fólki við að minnka vatns- og orkunotkun stuðlum við að sjálfbærara heimilislífi.
Grunnskápur með þremur skúffum
Hliðarplata: Spóna- og trefjaplata með pappafyllingu (100% endurunnin pappír), Plastþynna, Plastkantur
Botnplata/ Bakrim: Spónaplata, Plastþynna, Plastkantur
Skúffa: Stál, Epoxý/pólýesterduftlakk
Skúffubotn: Trefjaplata, Plastþynna
Grunnskápur fyrir vask
Hliðarplata/ Botnplata: Spóna- og trefjaplata með pappafyllingu (100% endurunnin pappír), Plastþynna, Plastkantur
Bakrim/ Fylling: Spónaplata, Plastþynna, Plastkantur
Fætur fyrir skáp
Rör: Stál, Duftlakkað
Fótur: Pólýprópýlenplast (a.m.k. 20% endurunnið)
Diskur: Stál, Duftlakkað, Galvaníserað stál
Festing: Stál, Epoxý/Akrýlhúð
Vegghilla
Rör: Stál, Duftlakkað
Hilla: Galvaníserað stál, Duftlakkað
Fleygur: Stál, Epoxý/Akrýlhúð
Hurð/ skúffuframhlið
Grunnefni: Spónaplata
Framhlið/ Bakhlið: Plastþynna
Kantur: Plastkantur
Snagi
Ryðfrítt stál, Duftlakkað
Ílát
Pólýprópýlenplast (a.m.k. 20% endurunnið)
Hilluinnlegg, hangandi
Galvaníserað stál, Duftlakkað
Slá fyrir snaga
Stál, Duftlakkað
Borðplata
Spónaplata, Samlímt, Plastkantur, Samlímt
Vaskur, einfaldur
Grunnefni: Ryðfrítt stál
Svampur: pólýúretanplast
Vatnslás/sigti fyrir 1 hólf
Rör: Pólýprópýlenplast
Sía/ Sía: Ryðfrítt stál
Pakkningar: Gervigúmmí
Hnúður
Ál, Duftlakkað
Blöndunartæki
Látún, Krómhúðað
1 x Blöndunartæki
Vörunúmer: 10085027
1 x Vatnslás/sigti fyrir 1 hólf
Vörunúmer: 10311539
1 x BOHOLMEN vaskur, einfaldur
Vörunúmer: 00244084
1 x ENHET vegghilla
Vörunúmer: 00448972
Uppselt
1 x LAGAN blöndunartæki
Vörunúmer: 10085027
1 x LILLVIKEN vatnslás/sigti fyrir 1 hólf
Vörunúmer: 10311539
1 x ENHET skúffuframhlið
Vörunúmer: 10457701
1 x EKBACKEN borðplata
Vörunúmer: 30395439
1 x ENHET hurð
Vörunúmer: 30457700
1 x SKATTÅN ílát
Vörunúmer: 30465757
1 x ENHET grunnskápur með þremur skúffum
Vörunúmer: 40440422
1 x ENHET grunnskápur fyrir vask
Vörunúmer: 50440426
2 x ENHET snagi
Vörunúmer: 60465751
1 x ENHET slá fyrir snaga
Vörunúmer: 70465741
1 x ENHET hilluinnlegg, hangandi
Vörunúmer: 70465755
2 x HACKÅS hnúður
Vörunúmer: 80339790
Uppselt
2 x ENHET fætur fyrir skáp
Vörunúmer: 90449019
Uppselt
1 x ENHET skúffuframhlið
Vörunúmer: 90457702
Er að klárast