Með LED snjallljósaperu getur þú lagað lýsinguna að mismunandi aðstæðum. Hafðu til dæmis daufa og hlýlega birtu yfir matarborðinu og bjartari, kaldari birtu fyrir vinnu.
Nánari upplýsingar um IKEA Home smartVefverslun: | Til á lager |
Verslun: | Til í verslun |
Með LED snjallljósaperu getur þú lagað lýsinguna að mismunandi aðstæðum. Hafðu til dæmis daufa og hlýlega birtu yfir matarborðinu og bjartari, kaldari birtu fyrir vinnu.
Með fjarstýringunni getur þú deyft lýsinguna þráðlaust og skipt á milli þriggja hvítra litatóna til að skapa rétta andrúmsloftið.
Þú getur breytt stemningunni í rýminu með því að deyfa lýsinguna, ásamt því að spara orku.
Þú getur notað fjarstýringuna á allt að tíu snjallljósgjafa sem bregðast allir við á sama hátt.
Bættu við TRÅDFRI gátt og IKEA Home smart appinu og þú getur ákveðið hvaða ljós kvikna samtímis og stjórnað þeim með mismunandi hætti.
LED lýsing notar allt að 85% minna af orku og endist um tuttugu sinnum lengur en hefðbundin glópera.
Bættu við fjarstýringu til að stýra ljósgjafanum.
Aðeins hægt að nota með IKEA ljósastýringarvörum.
Það er hægt að nota þessa vöru með þráðlausum ljósdeyfi. IKEA ljósastýring gerir þér kleift að deyfa ljósin án þess að hafa veggtengdan ljósdeyfi.
Þessi ljósapera hentar ekki með veggtengdum ljósdeyfum.
Hægt er að breyta litahitastiginu með þremur mismunandi stillingum: 2.200 Kelvin (hlýr bjarmi), 2.700 Kelvin (hlýr hvítur) og 4.000 Kelvin (kaldur hvítur).
Birtan frá þessari LED peru samsvarar birtu frá hefðbundinni 75 W glóperu.
Líftími LED er um 25.000 klst.
Virkar með IKEA Home smart.
Bættu við TRÅDFRI gáttinni og IKEA Home smart appinu til að stýra með Amazon Alexa, Apple HomeKit eða Google Home.
Náðu í fría IKEA Home smart appið í Google Play eða App Store, eftir því hvernig síma þú ert með.
Nota má ljósaperuna í -20°C til +40°C.
Orkunotkun í biðstöðu: 0,3 W.
Við bjóðum eingöngu upp á LED lýsingu í vöruúrvali okkar.
Þarfnast mögulega sérmeðhöndlunar við förgun. Vinsamlega athugaðu reglur á þínu svæði.
Varan er CE-merkt.
Fjarstýring er seld sér.
Gátt er seld sér.
IKEA of Sweden
Sjálfgefið litarhitastig: 2700 kelvin
Sjálfgefið ljósstreymi: 1055 Lumen
Orkunotkun: 9.5 W
Með því að framleiða vörur sem hjálpa fólki við að minnka orkunotkun stuðlum við að sjálfbærara heimilislífi.
Pólýkarbónatplast
Tegundarheiti | IKEA |
Litaendurgjöf | 90 |
Litarhitastig | 2700 Kelvin |
Hægt að nota með ljósdeyfi | Nei |
Orkunotkun ljósgjafa þegar hann er á | 10 kWh/1000h |
Orkuflokkur | E |
Tegundarauðkenni | LED2003G10 |
Orkunotkun í biðham | 0.25 Watt |
Vöruupplýsingablað | Nánar |
Skilgreindur líftími lampa | 25000 h |
Skilgreint ljósstreymi | 1055 lúmen |
Málafl | 9.5 W |
Kveikitími | 0.5 sekúndur |
Deyfanlegt þráðlaust | Já |