Ábyrgðarskilmálar fyrir eldhús
Miklar kröfur eru gerðar til eldhússins í daglegu lífi. Til að tryggja að eldhúsinnréttingin þoli mikla þyngd, háan hita og daglega notkun eru eldhúsin okkar vandlega prófuð.
Við bjóðum þér 25 ára ábyrgð, sem nær yfir galla í efni og framleiðslu á METOD eldhússkápum.
Hurðir
Eldhús eru af ýmsum stærðum og gerðum og smekkur fólks er ólíkur. METOD eldhúseiningarnar sem gráu BODBYN framhliðarnar passa á eru því afar hentugur kostur. Einingarnar fást í mörgum stærðum og þú getur því raðað þeim saman eins og hentar þínu rými.
Skúffur
Þegar útlit eldhússins hefur verið valið er komið að því að skipuleggja innvolsið. Við erum með útdraganlegar hirslur og vinnuborð, faldar skúffur og fleira sem auðveldar þér að nýta skápaplássið til fulls. Veldu það sem hentar þér og þínu eldhúsi.
Við hjálpum þér að hanna draumaeldhúsið
IKEA býður upp á vandaða þjónustu við að hanna eldhús sem er sérsniðið að þínum þörfum og rýminu sjálfu.