Leiðbeiningar fyrir IKEA snjalllýsingu

Það er lítið mál að setja upp snjalllýsingu. Byrjaðu á að hugsa um hvað þú gerir í hverju rými fyrir sig: hvers konar lýsingu þarftu, viltu stilla birtuna eða geta valið á milli lita? Viltu geta stjórnað öllu með símanum?

Best er að blanda saman hagnýtri- og stemningslýsingu, til dæmis lesljósi ásamt gólflampa með ljósaperum sem hægt er að dimma. Fylgdu skrefunum hér að neðan til að setja upp snjalllýsingu á heimilinu.

1. Athugaðu perustæðið

2. Eiginleikar ljóssins

Dimmaðu lýsinguna og veldu á milli kaldrar og hlýrrar birtu.
Dimmaðu lýsinguna, skiptu á milli kaldrar og hlýrrar birtu og veldu úr ólíkum litum.

3. Stjórnaðu snjallperunum

Fjarstýringar

Notaðu fjarstýringu til að stjórna annaðhvort einu ljósi eða ljósaþyrpingu. Með flýtihnappi geturðu stillt á „senu“. Fjarstýringarnar eru auðveldar í notkun fyrir vini og fjölskyldu þegar þau koma í heimsókn.
Með fjarstýringu geturðu skipt á milli lita og hvítra tóna.

Add DIRIGERA Hub with the app to get even more colours and white lights.

Bættu við DIRIGERA gátt og appinu til að fá enn fleiri liti og hvíta tóna.

Skoðaðu BILRESA fjarstýringar

Hreyfing

Lýsing sem nemur hreyfingu gerir heimilið öruggara og þægilegra. Notaðu hreyfiskynjarann til að kveikja ljósin í dimmum rýmum, eins og á leiðinni á baðherbergið um nóttina, eða á stöðum þar sem þú ert oft með hendur fullar, eins og við útidyrnar, í stiga, geymslu eða þvottahúsi. Hann kemur sér einnig vel í fataskápnum þar sem innbyggðu ljósin kvikna þegar þú opnar hann.

Based on the universal standard Matter.

Skoðaðu MYGGSPRAY þráðlausan hreyfiskynjara
 

Raddstýring

4. Fyrir hvert tilefni!

Með DIRIGERA gátt og IKEA Home smart appinu geturðu stjórnað hverju ljósi eða ljósaþyrpingu fyrir sig. Skapaðu stemningu með ólíkum ljósastillingum, eins og fyrir sjónvarpsáhorf eða rómantískan kvöldverð, og stjórnaðu þeim með fjarstýringu eða appinu. Slökktu, kveiktu, dimmaðu og skiptu á milli hlýrrar og kaldrar birtu eins og þér hentar. Vaknaðu við notalega birtu, kveiktu og slökktu á lýsingunni samkvæmt tímaáætlun og stilltu tímastilli svo ljósin kvikni eins og þú vilt, jafnvel þegar þú ert ekki heima. Með DIRIGERA gátt geturðu stækkað snjallheimilið þitt með ótakmörkuðum fjölda snjallvara. Við erum sífellt að uppfæra IKEA Home smart appið með fleiri stillingum og möguleikum.

Sæktu appið í App Store

Sæktu appið á Google Play

Vörur sem þú skoðaðir síðast

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X