Við fengum að líta inn í EKOhúsið í Síðumúla, en verslunin er nánast alfarið innréttuð með IKEA húsgögnum og smávörum. EKOhúsið er falleg verslun með áherslu á umhverfisvænar og náttúrulegar vörur. IKEA húsgögnin falla skemmtilega inn í rýmið og eru góður bakgrunnur fyrir vörurnar. Margrét, Hafrún og Þurý í EKOhúsinu gáfu okkur innsýn í ferlið og hér má sjá útkomuna.

Hugmyndin að innréttingunum kviknaði á IKEA vefnum. Markmið þeirra var að halda kostnaði í lágmarki en á sama tíma að innréttingar myndu endast lengi, ásamt því að leyfa vörunum að njóta sín sem best í fallegu rými.

IVAR hillueiningarnar eru úr gegnheilli furu sem fær að njóta sín og einnig eru nokkrar málaðar í sama lit og veggirnir til að brjóta upp rýmið og skapa samræmt útlit.

Skoðaðu IVAR

„Við vildum finna hillueiningar sem væru hlutlausar, úr náttúrulegum efnivið og sem væri auðvelt að setja upp en einnig hægt að breyta og bæta við með auknu vöruúrvali. Eftir að hafa skoðað hvað væri í boði á markaðnum sáum við að IVAR hillurnar frá IKEA uppfylltu allar okkar kröfur. Hægt er að velja um grunnar eða djúpar einingar og raða þeim upp á mismunandi hátt, jafnvel sem eyjur á miðju gólfi og svo er auðvelt að breyta og bæta við hillum og einingum eftir þörfum.“ – Hafrún, Margrét og Þurý

 

Skoðaðu IVAR

„Við komumst fljótt að því að það var skemmtilegt að nota IVAR hillurnar í sérsmíðaðar lausnir sem hentuðu okkar rými, t.d. hillur fyrir gluggaútstillingar, við gerðum risastóra eyju þar sem við notuðum IVAR fyrir grunn og smíðuðum hólf fyrir sápustykki og aðrar smávörur, eins konar „markaðseyju“.“ - Hafrún, Margrét og Þurý.

 

Skoðaðu IVAR

Hannaðu þína eigin IVAR samsetningu

Opna teikniforrit

Seinna bættu þær ELVARLI hirslueiningum við. Vöruúrvalið hafði aukist og því þurftu þær meira pláss. ELVARLI hentuðu vel því þær geta verið úti á miðju gólfi og nýta lofthæðina vel þar sem þær ná alveg frá gólfi upp í loft.

Skoðaðu ELVARLI
IKEA
IKEA
IKEA
IKEAalt

„Við höfðum smá áhyggjur af því að slíkar hillur myndu skyggja á vörur inni í búðinni en ELVARLI hillurnar eru þannig gerðar að vörurnar njóta sín mjög vel í hillunum en maður sér líka mjög vel í gegnum þær og rýmið fær að „anda“.“ Hafrún, Margrét og Þurý

 

Skoðaðu ELVARLI

,,ELVARLI hillurnar hentuðu okkur einnig einstaklega vel þar sem maður getur sett þær upp á svo mismunandi hátt, t.d. með slá fyrir fatnað og aðrar textílvörur og við komumst fljótt að því að skúffurnar sem er hægt að setja neðst eru fullkomnar til að nýta í auka lager á smávöru, því að neðstu hillur eru oft til vandræða og ekki beint skemmtilegar til að stilla út vörum.“

 

Skoðaðu ELVARLI

,,Við erum mjög ánægðar með valið á innréttingum í verslunina okkar sem hefur svo sannarlega stækkað með árunum og með því að vanda valið í byrjun höfum við getað nýtt hillueiningarnar vel og lengi án þess að þurfa að skipta þeim út, sem hefur þá í raun sparað okkur kostnað og styður einnig við okkar hugsjón þegar kemur að nýtni og umhverfisvernd.“ Hafrún, Margrét og Þurý

 

Skoðaðu ELVARLI

Hannaðu þína eigin ELVARLI samsetningu

Opna teikniforrit

Fyrirtækjaþjónusta IKEA

Hjá IKEA fæst allt fyrir heimilið en við bjóðum einnig upp á fjölbreyttar lausnir fyrir fyrirtæki. Fyrirtækjaþjónusta IKEA býður upp á ráðgjöf og þjónustu, hvort sem þú ert að gera upp starfsmannaeldhús, opna veitingastað, hanna gistiheimili eða verslun. 


Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X