HAVSTORP drappað með mattri áferð
Mattar, drappaðar HAVSTORP framhliðar eru sléttar með stílhreinum línum sem færa eldhúsinu afslappað og notalegt yfirbragð. Fullkominn valkostur fyrir þau sem vilja nútímalegan og hlutlausan stíl.
Ábyrgðarskilmálar fyrir eldhús
Miklar kröfur eru gerðar til eldhússins í daglegu lífi. Til að tryggja að eldhúsinnréttingin þoli mikla þyngd, háan hita og daglega notkun eru eldhúsin okkar vandlega prófuð.
Við bjóðum þér 25 ára ábyrgð, sem nær yfir galla í efni og framleiðslu á METOD eldhússkápum.
Hurðir
Búðu til eldhús sem er sérsniðið fyrir þig með framhliðum sem endurspegla þinn persónulega stíl. Eldhús eiga að koma til móts við ólíkar þarfir og smekk fólks og þá koma METOD eldhússkáparnir sér einstaklega vel – eins og þessir sem leynast á bak við HAVSTORP framhliðarnar. Eldhússkáparnir eru til í ótal stærðum og gerðum og henta því þínum þörfum fullkomlega.
Skúffur
Veldu stærðina á skúffunum eftir þínum þörfum. Stórar skúffur fyrir potta, pönnur og minni fyrir hnífapör og áhöld. Skoðaðu mismunandi stærðir hér að neðan til að fá nánari upplýsingar.
Við hjálpum þér að hanna draumaeldhúsið
IKEA býður upp á vandaða þjónustu við að hanna eldhús sem er sérsniðið að þínum þörfum og rýminu sjálfu.