Tími garðveislunnar er hafinn! Njóttu sólarinnar með hlátri, samveru og hæfilegu magni af tómatsósu. Þetta skemmtilega og notalega útisvæði er staðurinn þar sem fjölskyldan og vinirnir geta komið saman til að elda, borða og slaka á. Létt húsgögn, litríkir diskar og notaleg teppi búa til pláss fyrir gestina – jafnvel þá sem gleymdu að melda sig í veisluna. Skál fyrir sumrinu!
Er afmæli eða önnur veisla á döfinni? Þá kemur NÄMMARÖ útieldhúsið að góðum notum við undirbúninginn. Hillur, geymslupláss, vaskur og gott vinnuborð auðvelda þér að útbúa fersk salöt og safaríka rétti fyrir veisluna. Bakhlífin bætir notagildi og er í stíl við útieldhúsið. Þú getur geymt áhöld á snögunum eða haft hlífina til skrauts.
Lág, sveigjanleg sæti á litríku teppi skapa afslappað og þægilegt umhverfi. Rammaðu svæðið inn með HÖGÖN sólhlíf, flottu GRYTSHOLM innskotsborði, hagnýtum SUNDSÖ fellistólum og þægilegum púðum. Hver hlutur umbreytir hinu hversdagslega í eitthvað alveg einstakt.
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn