Fyrir sumarhátíðir allan sólarhringinn

Tími garðveislunnar er hafinn! Njóttu sólarinnar með hlátri, samveru og hæfilegu magni af tómatsósu. Þetta skemmtilega og notalega útisvæði er staðurinn þar sem fjölskyldan og vinirnir geta komið saman til að elda, borða og slaka á. Létt húsgögn, litríkir diskar og notaleg teppi búa til pláss fyrir gestina – jafnvel þá sem gleymdu að melda sig í veisluna. Skál fyrir sumrinu!

Undirbúningur fyrir veislu utandyra

Er afmæli eða önnur veisla á döfinni? Þá kemur NÄMMARÖ útieldhúsið að góðum notum við undirbúninginn. Hillur, geymslupláss, vaskur og gott vinnuborð auðvelda þér að útbúa fersk salöt og safaríka rétti fyrir veisluna. Bakhlífin bætir notagildi og er í stíl við útieldhúsið. Þú getur geymt áhöld á snögunum eða haft hlífina til skrauts.

 

Gott grill fyrir ómótstæðilegt bragð

Hvort sem þú tekur útieldamennskunni alvarlega eða finnst bara gaman að halda eina eða tvær grillveislur yfir sumarið þá er áreiðanlegt grill ómissandi. Gott kolagrill gefur þér meiri tíma til að sinna gestunum á meðan þú bíður eftir því að glæðurnar verði fullkomnar til að færa matnum dásamlegt grillbragð. Minni GRILLSKÄR hillueiningin er fullkomin við hliðina á grillinu til að búa til auka vinnupláss eða til að búa til horn í útieldhúsinu þínu. Nú er bara að finna uppáhaldsuppskriftirnar, kveikja upp í grillinu og byrja að snúa kúrbítnum eins og atvinnumaður.

Heilsaðu sumrinu!

Hlýtt veður, ljúffengir grillréttir, létt útihúsgögn, litríkir diskar og ógleymanlegar stundir í góðum félagsskap – notaðu garðinn þinn fyrir það besta sem sumarið hefur upp á að bjóða!

Fáðu þér sæti undir berum himni og byrjaðu veisluhöldin

Búðu til hátíðlegt borðhald utandyra fyrir bjartar og bragðmiklar samverustundir. NÄMMARÖ borð og fellistólar úr hlýlegum akasíuviði færa þér allt sem þarf fyrir langar kvöldmáltíðir og skemmtileg sumarboð. Þau eru fullkomin þegar Sigga frænka birtist óvænt með gest í eftirdragi – þú einfaldlega fellir húsgögnin út og sest niður. HELGEÖ skrautslá skapar fallegan ramma utan um veisluna og hentar fullkomlega fyrir SOLVINDEN ljósaseríu eða hangandi plöntur. Verði þér að góðu!

Lautarferð í garðinum

Lág, sveigjanleg sæti á litríku teppi skapa afslappað og þægilegt umhverfi. Rammaðu svæðið inn með HÖGÖN sólhlíf, flottu GRYTSHOLM innskotsborði, hagnýtum SUNDSÖ fellistólum og þægilegum púðum. Hver hlutur umbreytir hinu hversdagslega í eitthvað alveg einstakt.

 

Slakaðu á og njóttu sumarsins

Búðu til fullkomið svæði til að slaka á undir berum himni og njóttu hlýju sumardaganna til hins ýtrasta. Hvítur sófi skapar róandi andrúmsloft á meðan bleikir púðar og appelsínugul teppi bjóða upp á fjör og fjölbreytni. GRYTSHOLM innskotsborðin í svarbláum lit eru góð viðbót við útirýmið – til þjónustu reiðubúin með praktískum eiginleikum. Bættu VAPPEBY bluetooth-hátalara við stemninguna, hallaðu þér aftur og njóttu augnabliksins með vinum og uppáhaldstónlistinni.

Steldu stílnum


Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X