Glæsileg stofa sem er í senn lítil, nútímaleg og sniðug

Þessi nútímalega stofa er lítil en falleg og getur sinnt mörgum hlutverkum í einu. Hún nýtist jafnt sem borðstofa og leikjaaðstaða og er kjörin til að taka á móti gestum, hvort sem er í persónu eða á samfélagsmiðlum. Með sniðugum hirslum, notalegum textíl og snjalllýsingu sem breytir stemningunni á augabragði getur þú skapað hagnýtt og þægilegt rými sem sýnir þínar bestu hliðar.

Færðu uppáhaldshlutunum sviðsljósið

RÅDMANSÖ skápurinn býr yfir hlýlegum hnotutón og fallegum smáatriðum á borð við svarta málmfætur sem gefa skápnum létt yfirbragð. Hann er tilvalinn til að sýna uppáhaldshlutina þína og býður auk þess upp á gott hirslupláss svo þú getir geymt hlutina snyrtilega í skúffum eða hillum á bak við rennihurð.

Skoðaðu skápa og hirslur

Steldu stílnum

Notalegar stundir með vinum – í netheimum og raunheimum

Hvort sem þú ætlar að hanga með vinum á netinu eða í persónu er mikilvægt að skapa þægilegt umhverfi. UTESPELARE tölvuleikjaborðið er rúmgott og býður upp á sex mismunandi hæðarstillingar svo þú getir fundið þá sem hentar þér best. Svo getur þú aðlagað STYRSPEL leikjastólinn að þínum líkama með því að stilla höfuðpúðann, bak, arma og setu. Þægilegi LANDSKRONA sófinn og FRÖTORP sófaborðið skapa svo réttu stemninguna fyrir notaleg kvöld heima með vinum með nóg af plássi fyrir snarl og borðspil.

Skoðaðu LANDSKRONA sófa

Frískaðu upp á stofuna

Hirslur eftir þínu höfði

Þegar margt fer fram í sama rýminu, eins og notalegar máltíðir við STOCKHOLM 2025 borð og stóla, þarf að vera nóg pláss til að geyma ýmislegt. Þessi BESTÅ samsetning nær hátt upp á vegg svo þú færð gott hirslupláss án þess að fórna of miklu gólfplássi. BESTÅ kerfið býður upp á fjölbreytta möguleika sem henta þínum þörfum og rými, auk ólíkra hurða, skúffuframhliða og halda svo þú getir náð fram því útliti sem þú vilt. Þú getur valið tilbúnar einingar eða búið til þína eigin samsetningu.

 

Skoðaðu BESTÅ

Skoðaðu BESTÅ

Breyttu stemningunni á snjallan og auðveldan hátt

Hér er leikur einn að breyta lýsingunni og andrúmsloftinu – þú þarft ekki einu sinni að standa upp úr sófanum. Með DIRIGERA gátt geturðu stjórnað snjallperum og fleiru með IKEA Home smart appinu í símanum. Með snjallinnstungunum getur þú jafnvel tengt „venjuleg“ heimilistæki, eins og kaffivél eða VARMBLIXT LED lampa, við gáttina og stjórnað þeim líka með appinu.

Skoðaðu snjallvörur