Glæsileg stofa sem er í senn lítil, nútímaleg og sniðug
Þessi nútímalega stofa er lítil en falleg og getur sinnt mörgum hlutverkum í einu. Hún nýtist jafnt sem borðstofa og leikjaaðstaða og er kjörin til að taka á móti gestum, hvort sem er í persónu eða á samfélagsmiðlum. Með sniðugum hirslum, notalegum textíl og snjalllýsingu sem breytir stemningunni á augabragði getur þú skapað hagnýtt og þægilegt rými sem sýnir þínar bestu hliðar.
Steldu stílnum
Frískaðu upp á stofuna
Hirslur eftir þínu höfði
Þegar margt fer fram í sama rýminu, eins og notalegar máltíðir við STOCKHOLM 2025 borð og stóla, þarf að vera nóg pláss til að geyma ýmislegt. Þessi BESTÅ samsetning nær hátt upp á vegg svo þú færð gott hirslupláss án þess að fórna of miklu gólfplássi. BESTÅ kerfið býður upp á fjölbreytta möguleika sem henta þínum þörfum og rými, auk ólíkra hurða, skúffuframhliða og halda svo þú getir náð fram því útliti sem þú vilt. Þú getur valið tilbúnar einingar eða búið til þína eigin samsetningu.