Skrítin horn og hallandi loft færa rýminu karakter
Súðin reynist fólki oft áskorun Við lítum þó á hana sem tækifæri. LACK hillur smellpassa og koma einstaklega vel út. MICKE skrifborðið fyllir út í rýmið og fullnýtir plássið.
Hentugt haldreipi
Þó snúrum fari fækkandi þá eru þær enn ómissandi hluti af raftækjum og því nauðsynlegt að koma á góðu snúruskipulagi. HAVSKÅL snúruhaldarar eru þér – og snúrunum – til halds og trausts. Sniðug lítil lóð sem halda snúrunum á sínum stað og lífga upp á skrifborðið um leið.
Skipulagshetjurnar
Fötin skapa manninn
Hvernig væri að breyta herberginu í stóran fataskáp? Fataslá sparar pláss og skartar fallegum fötum og hentugir fatakassar sjá um annað.
Kórónaðu útlitið
Þegar þú hefur fundið lausnina fyrir fötin þín vantar aðeins spegil og veggfastan skrifborðslampa til að kóróna fatarýmið. Þú finnur fötin á augabragði og sérð útkomuna í réttu ljósi.
Tími fyrir mig
LYCKSELE svefnsófinn er þinn griðastaður. Hann skapar rými til að hlusta á tónlist, slaka á eða jafnvel læra.
Sveigjanlegar hirslulausnir
Stofa tekur stakkaskiptum
Þegar dagurinn er að enda kominn þarf einfaldlega að rétta úr sófanum og stofan verður að svefnherbergi. OLSERÖD hliðarborðið er fartölvuborð á daginn en nýtist sem náttborð á kvöldin (SKÅDIS minnistaflan geymir hlutina á daginn). Það eina sem vantar er að velja lagalista eða þátt til að koma sér niður fyrir svefninn.
Rými í takt við daginn
Herbergið er sannarlega fallegt og notalegt en aðalstyrkleiki þess er hvernig það lagar sig að verkefnum dagsins. Það breytist auðveldlega úr stofu í svefnherbergi með góðri námsaðstöðu, fatahirslu, gardínum, skrifborðsljósi og hangandi ljósaperum. Allt tengist og er í fullkomnum samhljómi.