Fallegar hugmyndir í forstofuna

KALLSÖ forstofuhúsgögnin sameina náttúrulegan við og gráan lit með hirslu og stað til að sitja á – hvernig sem þeim er raðað saman! Bekkurinn er með skúffum sem henta fyrir smærri hluti eins og lykla og sólgleraugu annars vegar og stærri hluti eins og poka, hjálma og íþróttabúnað hins vegar. Hattahilla og bekkur með skóhirslu standa einnig fyrir sínu – og saman söngla þau „Það er svo gott að koma heim!“

Hefðbundin en snjöll

KALLSÖ hattahillan er allt sem hægt er að óska sér í fjölnota hirslu. Hún er með tvöföldum snögum, fataslá fyrir herðatré og hillu – og lítur frábærlega út! Bekkur með hirslu í stíl geymir allt dótið sem á það til að liggja eins og hráviði á gólfinu, eins og hjálma og bakpoka – þessir hlutir eru vissulega bjargvættir en þeir eru ekki alltaf augnayndi. Síðast en ekki síst þá er hægt að raða skónum fallega í bekk með skóhirslu.

Færðu örlítið af náttúrunni með þér inn

Lifandi plöntur skapa notalegt og aðlaðandi andrúmsloft og því er tilvalið að láta þær taka móti þér og gestunum í forstofunni – hún er hvort eð er hönnuð til að þola smá óhreinindi. Það getur verið skemmtileg lausn að raða saman plöntum af öllum stærðum þar sem minnstu plönturnar fá að dafna í ÅKERBÄR gróðurhúsi í sólríkri gluggakistunni. Gerðu forstofunni kleift að blómstra!

 


Hér þarf ekki að stíga varlega niður

Það er engin regla um að það megi bara vera ein motta. Því fleiri sem motturnar eru, því meiri vörn fyrir gólfið. Settu nokkrar minni mottur þar sem þörfin er mest, þá er auðvelt að hrista óhreinindin úr þeim án þess að þurfa að færa stærri mottuna undir í hvert sinn. Hagnýt lausn – en líka falleg!

Skoðaðu mottur

Skoðaðu mottur

Lúxusrými

Aukafermetri gerir kannski ekki svo mikið en hann getur verið sannkallaður lúxus þegar hann er nýttur undir búr. Það eina sem þú þarft að gera er að koma IVAR hillueiningu fyrir og þá skilur þú vinsældir IVAR línunnar sem hefur verið í uppáhaldi í yfir 50 ár. Á augabragði færð þú pláss fyrir sorpflokkunina, matvörur, hundamatinn, fjölskyldudagatalið eða hvað sem þú vilt fela á bak við fallegt tjald. Á veggnum til hliðar er gott að hengja upp snaga í mismunandi hæð fyrir yfirhafnir allra í fjölskyldunni.

Skoðaðu IVAR hirslur

Bara ekki opna fataskápinn!

Nema auðvitað ef þú þarft að ná í eitthvað úr honum. Innvolsið í skápnum er sérhannað til að geyma það sem er árstíðabundið, fyrirferðarmikið eða sjaldan notað og myndi annars skapa óreiðu í forstofunni. Núna leynist það allt á bak við fallegar hurðir sem færa forstofunni hefðbundið og snyrtilegt yfirbragð.

Skoðaðu PAX fataskápa

Steldu stílnum


Vörur sem þú skoðaðir síðast