Vel skipulagt þvottahorn
Er baðherbergið lítið og þröngt? Á einfaldan hátt getur þú búið til góða þvottaaðstöðu með fyrirferðarlitlum ENHET hirslum og MULIG fataslá. Heimilisfólkið á eftir að keppast um að taka úr þvottavélinni!
Skipulag róar hugann
HORNAVAN hjólaborðið er lítið og nett – tilvalin hirsla fyrir snyrtivörur og annað sem þú vilt hafa við höndina. Þú getur fært það til því það er á hjólum! Hillurnar eru opnar og þú getur því haft allt aðgengilegt.
Speglaskápur gerir gæfumuninn
Grunnur og mínimalískur speglaskápur er frábær lausn til að nýta veggplássið. Lokuð hirsla felur hluti sem þú vilt ekki hafa í allra augsýn og hann sýnir þér þínar bestu hliðar í húðrútínu dekurkvöldsins. Kemur sér vel á litlu baðherbergi!
Hengdu það á snaga!
Þegar kemur að því að nýta plássið vel eru SKOGHALL snagar þeir bestu í verkið. Þeir eru með lími og festast á vegginn án þess að skilja eftir sig far. Þeir eru stílhreinir og snyrtilegir og með því að hengja röndótt handklæði á þá færir þú rýminu mýkt og stíl.
Fallegar baðherbergisvörur með möttu yfirborði og ávölum línum
Öll baðherbergi geta orðið að notalegu og hentugu rými, jafnvel þau minnstu. Einfaldar breytingar líkt og flottir aukahlutir og speglaskápur koma þér langleiðina
Byrjaðu daginn á snyrtilegu baðherbergi
Hvernig líst þér á þetta baðherbergi? Sérðu þig fyrir þér teygja þig í kremið þitt sem er á snyrtilegri, hvítri hillu? Þú gefur nóg pláss til að athafna þig og gera þig til fyrir daginn. Gefðu þér fimmu í speglinum fyrir að skapa svona snyrtilegt og fallegt baðherbergi.
Steldu stílnum