Lítil, hentug stofa fyrir skapandi fjölskyldu
Lítið, hentugt rými þar sem persónulegur og klassískur stíll fær að njóta sín. Tilvalið fyrir fjölskyldur sem elska að verja tíma saman og leyfa sköpuninni að blómstra. Nægt hirslupláss er fyrir föndurdót og annað smálegt auk þess sem pláss er til að sýna afrakstur sköpunarinnar. Þægileg sæti bjóða upp á slökun eftir annasaman dag. Það er ýmislegt fleira sem gleður augað …
Kassar og körfur halda öllu í röð og reglu
Með kössum og körfum er auðvelt að halda utan um smáhluti og nýta plássið í hillum og skápum sem best.
Vantar stofuna smá upplyftingu?
Rými fyrir sköpun og slökun
Þessi stofa sameinar notagildi og þægindi á skemmtilegan hátt. Þægilegur sófi og notalegt umhverfi gera rýmið að tilvöldum stað fyrir fjölskylduna til að slaka á eftir skapandi samverustundir. Nýjustu listaverkin geta fengið að njóta sín í HEMNES skápnum. BESTÅ sjónvarpsbekkurinn, sem er í stíl við stærri BESTÅ hirsluna á veggnum á móti, hjálpar til við að halda snúrum snyrtilega úr augsýn. Þar er líka tilvalið að geyma fjarstýringar og borðspil.