Nútímaleg stofa fyrir samveru og notalegar stundir

Kíktu inn á nútímalegt heimili þar sem snjallar lausnir og vel nýtt rými skapa notalegt umhverfi fyrir margar kynslóðir undir sama þaki. Stofan býður bæði upp á notalega samveru og rólegar einkastundir, eftir því hvað hentar hverju sinni. Útkoman er þægilegt og fallegt rými þar sem öllum líður vel.

Varpaðu ljósi á smáatriðin

Í góðri bókahillu er eitthvað fyrir alla – klassískar skáldsögur, glanstímarit, plöntur og fallegir skrautmunir. Þegar rétta jafnvæginu hefur verið náð er um að gera að leyfa heildarmyndinni að njóta sín. Með þráðlausa TVÅMASTAD lampanum geturðu auðveldlega breytt lýsingunni eftir þörfum og með dimmanlegri YTBERG skápalýsingu skaparðu réttu stemninguna á hvaða tíma dags sem er. Lýstu upp það sem þú vilt að njóti sín og skapaðu réttu stemninguna fyrir alla sem líta við.

Skoðaðu innbyggða lýsingu

Vörur sem lífga upp á bókaskápinn

BILLY breytir um hlutverk – falið skrifborð þegar verkefnin kalla

Þessi notalegi leskrókur sýnir vel þá fjölbreyttu möguleika sem rýmið býður upp á. Þegar námið eða önnur verkefni kalla dregurðu einfaldlega fram BILLY bókaskáp með felliborði og áður en þú veist af ertu með þægilega vinnuaðstöðu. Gluggatjöldin skipta rýminu upp og veita aukið næði, hvort sem þú þarft að einbeita þér að verkefnum eða vilt einfaldlega eiga rólega stund út af fyrir þig.

Skoða BILLY vörulínuna

Allt fyrir vinnusvæðið

Sófi sem færir fólk nær hvert öðru

Hvort sem þú þarft sófa sem rúmar alla fjölskylduna, vilt hafa hann út af fyrir þig eða eitthvað þar á milli, þá býður KIVIK sófalínan upp á bestu sætin á heimilinu. Sófarnir eru rúmgóðir og þægilegir, með lágum og breiðum örmum og pokagormum sem auka þægindin. Það er nægt pláss fyrir þína nánustu – og nokkra til viðbótar – en sófinn nýtur sín ekki síður þegar þú hefur hann út af fyrir þig og eitthvað gott að maula.

Skoðaðu alla sófa

Hannaðu þinn eigin KIVIK sófa

Hirslur og þægindi sem mæta ólíkum þörfum

Þessi samverustaður heimilisins er hannaður þannig að auðvelt sé að laga rýmið að mismunandi þörfum. Vegghengdir skápar geyma spil, teppi, púða og jafnvel eitthvað gott í gogginn innan seilingar. Ef gestirnir dvelja aðeins lengur en ætlað var bjóða KIVIK svefnsófar upp á þægilega og sveigjanlega gistimöguleika.

 

Skoðaðu alla svefnsófa

Skoðaðu alla svefnsófa

Notalegt rými og snjallar lausnir Notalegt rými og snjallar lausnir

Það er engin tilviljun að gangurinn opnast beint inn að sófahorninu. Stofan er hugsuð sem notalegur samverustaður þar sem gott er að slaka á. Dagsbirta, plöntur og textíll skapa ferskt og notalegt andrúmsloft, á meðan gott geymslupláss og jafnvel lítið vinnusvæði tryggja að allt sem þú þarft sé innan seilingar.

 

Skoðaðu lampa

Skoðaðu lampa

Endurskapaðu rýmið – skref fyrir skref