Sumar hetjur liggja kylliflatar
SINDAL dyramottan er ein af þeim. Hún liggur bara þarna og sinnir sínu starfi sem dyravörður og ver heimilið fyrir óhreinindum. Þegar þú heldur að hún hafi sungið sitt síðasta er oft nóg að ryksuga hana eða hrista hressilega.
Hirsla fyrir alla daga
NIPÅSEN býður upp á pláss fyrir úlpur, skó, töskur, húfur, regnhlífar og fleira. Hún er fáanleg sem fatahengi með bekk og skógeymslu og sem bekkur með skógeymslu. Hirslurnar passa fullkomlega saman svo þú getur raðað saman eins mörgum og þú hefur pláss fyrir. Fullkomið til að tylla sér á meðan þú reimar skóna eða bíður eftir að allir klári að hafa sig til.
Ef það er aukaveggpláss skaltu bæta við nokkrum snögum eins og PINNIG. Síðast en ekki síst skaltu bæta við BAGGMUCK mottu sem passar fullkomlega undir NIPÅSEN einingarnar.
Biðin skemmtilega
Oft og tíðum breytist forstofan í biðstofu, sérstaklega ef fjölskyldan er stór. Hér þarf þó ekki að láta sér leiðast. FLISAT dúkkuhúsið á veggnum breytir biðinni í skemmtilega leikstund og rishæðin í húsinu kemur sér einnig vel fyrir lykla, sólgleraugu og annað smádót. UPPSTÅ hirslan líka frábær staður til að geyma smádótið sem ratar ekki á snagana.
Taktu til við að raða!
Kassar og körfur bjóða upp á endalausa möguleika til að flokka hluti.Flokkunaraðstaða sem þarf ekki að fela
Með TRÖSKNING fötum með loki verður flokkunaraðstaðan snyrtileg og um leið auðveldari í notkun. Ef það hentar betur er líka hægt að stafla fötunum ofan á hvor aðra.
Forstofa í blóma
Að sá fræjum, umpotta eða snyrta kryddjurtir og blóm er frábær leið til að hafa eitthvað fyrir stafni og láta hugann reika um leið. Hafðu potta, mold og verkfærin innan handar á BROR vinnubekknum til að minna þig á að taka þér tíma í plönturnar og um leið færa forstofunni náttúrulega blómlegan blæ! Á veggnum fyrir ofan heldur HULTARP slá og ílát verkfærunum aðgengilegum.
Persónulegar móttökur
Klár að fara út og takast á við ævintýri dagsins? Spegill í fullri stærð eins og LINDBYN er nánast ómissandi í forstofuna. Veldu einn skrautlit fyrir fallegt heildarútlit – allar skæru yfirhafnirnar og fylgihlutirnir veita nógu mikla samkeppni fyrir augað.
Hirslur sem virka allan ársins hring
Til að auðvelda skipulag í forstofunni skaltu setja hluti til hliðar sem eru ekki í mikilli notkun. Á bak við dyrnar á þessum PAX fataskáp leynast föt og dót fyrir allt árið, snyrtilega skipulagt og þar af leiðandi auðvelt að finna þegar það er tímabært. Fataskápurinn er grunnur og með rennihurðum og því tilvalinn fyrir lítið rými.
Gakktu inn um gleðinnar dyr
Með því einu að endurskipuleggja forstofuna er hægt að leysa ýmis vandamál og auðvelda lífið. Það sem þarf eru hirslur, góð nýting á veggjum og að losa sig við hluti sem eru ekki notaðir. Þannig kemur þú heim í notalega forstofu, lausa við alla óreiðu.