Nýtt skólaár – ferskt upphaf!
Gott upphaf veitir þér góðan meðbyr, hvort sem þú ert að flytja á stúdentagarða eða í fyrstu íbúðina. Sumar þarfir haldast óbreyttar: Þægileg námsaðstaða, notalegt rúm, sniðugar hirslur og leiðir til að viðhalda orkunni þegar það er mikið að gera í skólanum. Skoðaðu úrvalið og finndu innblásturinn fyrir nýtt skólaár.
Allt sem þarf fyrir nýtt skólaár
Steldu stílnum
Félagslífið býður þín!
Það er nokkuð algengt að ævilöng vinátta verði til á háskólaárum. Þess vegna gæti verið góð hugmynd að breyta rúminu í notalegt setusvæði til að geta boðið nýjum vinum heim sem oftast. SANELA púðaverin eru flauelsmjúk, endingargóð og auðvelt að þrífa og með snjallri samanbrjótanlegri hönnun er IKEA PS hliðarborð tilbúið hvenær sem þú þarft á því að halda.KULGLASS Bluetooth hátalarinn gerir þér kleift að skapa réttu stemninguna með mildri lýsingu og góðri tónlist. Með SPJUTLILJA borðbúnað við höndina ertu klár í að taka á móti gestum hvenær sem er.