Nýtt skólaár – ferskt upphaf!

Gott upphaf veitir þér góðan meðbyr, hvort sem þú ert að flytja á stúdentagarða eða í fyrstu íbúðina. Sumar þarfir haldast óbreyttar: Þægileg námsaðstaða, notalegt rúm, sniðugar hirslur og leiðir til að viðhalda orkunni þegar það er mikið að gera í skólanum. Skoðaðu úrvalið og finndu innblásturinn fyrir nýtt skólaár.

A dorm room includes a dark beige KRYLBO swivel chair made from Tonerud, in front of a height-adjustable desk.

Allt sem þarf fyrir nýtt skólaár

Hið margslungna líf skrifborðs

Skrifborðið breytist í borðstofuborð ... eða snyrtiborð. Kannski vinnuborð fyrir áhugamálið? TRAVSPORT hæðarstillanlegt skrifborð gerir þér kleift að breyta um stellingu með því að ýta á takka. Haltu skrifborðinu snyrtilegu með SKÅDIS minnistöflu, ásamt öllum þeim ílátum, hillum og höldum sem þú þarft.

Skoðaðu skrifborð
A young woman sits in a dark beige KRYLBO swivel chair at a desk, eating noodles, surrounded by storage and decorative items.
A study space features a dark red SKÅDIS pegboard above a desk, displaying stationery and headphones.

Skipulag á stúdentagörðunum 101

Ekki vanmeta mátt kassa, stórra og smárra. SKUBB kassarnir passa fullkomlega í STORKLINTA kommóðu og halda flíkum og fylgihlutum snyrtilega á sínum stað. Með SAMLA kössum og lokum geturðu haldið stærri hlutum aðskildum og verndað þá fyrir ryki. Lítil PÄRKLA þvottakarfa er létt og því er auðvelt að bera hana, sem auðveldar þér að tækla þvottinn.

Skoðaðu hirslur fyrir fataskipulag
A dorm room with a white STORKLINTA chest of three drawers featuring a neat arrangement of clothing and accessories.
A close-up of a dark grey SKUBB box set of three, neatly organised with folded clothes in various colours.
A dorm room with transparent SAMLA boxes with lids, filled with neatly folded linens, on top of a patterned rug.
A hallway with a green PEPPRIG cleaning bucket and caddy beside a large white PÄRKLA laundry bag filled with clothes.

Steldu stílnum

Félagslífið býður þín!

Það er nokkuð algengt að ævilöng vinátta verði til á háskólaárum. Þess vegna gæti verið góð hugmynd að breyta rúminu í notalegt setusvæði til að geta boðið nýjum vinum heim sem oftast. SANELA púðaverin eru flauelsmjúk, endingargóð og auðvelt að þrífa og með snjallri samanbrjótanlegri hönnun er IKEA PS hliðarborð tilbúið hvenær sem þú þarft á því að halda.

KULGLASS Bluetooth hátalarinn gerir þér kleift að skapa réttu stemninguna með mildri lýsingu og góðri tónlist. Með SPJUTLILJA borðbúnað við höndina ertu klár í að taka á móti gestum hvenær sem er.
Three students in a dorm room gathered around an IKEA PS 2026 side table, with a KULGLASS speaker lamp in the background.