1. Gardínur geta falið meira en bara glugga
Frá óreiðu að hugarró – það er merkilegt hvað gardínur geta gert mikið fyrir rými. Settu upp gardínustöng þvert yfir loftið, þannig ertu komin með einfalda og fljótlega leið til að fela kassa og hillur, eða jafnvel fataskáp og aðrar hirslur. VIDGA gardínubrautirnar bjóða upp á einfalda leið til að sérsníða brautina eftir rýminu.
Við erum samt ekki að segja að þú eigir bara að fela óreiðuna! Komdu skipulagi á hlutina sem þú geymir í hillunum, settu þá í kassa eða körfur þannig að það sé auðvelt að finna allt sem þú þarft þegar þú dregur gardínurnar frá.
Skoðaðu VIDGA línuna
3. Mundu eftir plássinu undir rúminu!
Rúmið er eitt fjölhæfasta húsgagnið í svefnherberginu en þetta rúm með hirslu er svo sannarlega þúsundþjalasmiður! Hirsla undir rúminu, hvort sem það er hluti af rúminu eða frístandandi kassi, opnar gátt (eða skúffu) að ótal hirslumöguleikum. Árstíðabundin föt geta átt heima þar en einnig hversdagslegir hlutir eins og íþróttabúnaður og jógamottur.
Skoðaðu rúm
4. Sæktu þér innblástur í hillurnar
Finndu bókunum samastað í bókaskáp. Raðaðu þeim þannig að þær veiti þér innblástur, hvort sem það er með því að raða þeim eftir lit, þema eða jafnvel í stafrófsröð.
Brjóttu upp útlitið með því að raða einnig uppáhaldshlutunum þínum á hillurnar og leiktu þér með uppröðunina og skipulagið þar til þú finnur rétta útlitið sem færir þér hugarró.
Skoðaðu bókaskápa
5. Blandaðu saman hirslum fyrir einstakt yfirbragð
Ef þú hefur ekki möguleikann á að setja upp hirslur yfir heilan vegg getur þú nýtt þér þessa hugmynd að hirslum sem krefjast þess ekki að þú borir í vegg. Slepptu sköpunarkraftinum lausum, blandaðu saman skúffueiningum á hjólum við sjónvarpsbekki og skápa til að skapa persónulegt yfirbragð og ólíka hirslumöguleika. Ólík húsgögn virka oft vel saman þegar þau eru í sömu, eða svipuðum, litatónum. Raðaðu þeim saman til að skapa afslappað og snyrtilegt yfirbragð. Búðu til þína eigin hirslusamsetningu sem virkar fyrir þig. Þá ertu með stað fyrir allt sem þú þarft.
8. Veldu stór húsgögn með mikla hirslumöguleika
Ef fataskápurinn ræður ekki við að halda utan um flesta hluti þá getur þú valið húsgagn með aukahirsluplássi – eins og þessa rúmgrind. Hirsluplássið kemur sér vel fyrir stóra hluti eins og ferðatöskur, aukasængur og rúmföt. Þegar allt á sér sinn stað þá öðlastu snyrtilegra rými og hugarró.Skoðaðu rúm
9. Minna er meira
Svo er það gullna reglan þegar það kemur að því að draga úr óreiðu. Hugaðu að yfirborðinu. Borð, kommóður, hillur og önnur yfirborð laða að sér óreiðu. Raðaðu örfáum hlutum sem skapa persónulegt yfirbragð og fjarlægðu hluti sem eru ekki hluti af útlitinu.Oft safnast óreiða í kringum rúmið og því er gott að hafa náttborð. Veldu borð með skúffu, veldu þrjá hluti til að stilla upp á borðinu og feldu annað í skúffunni.
Skoðaðu náttborð