Unglingar eyða oft miklum tíma í svefnherberginu sem er í raun bæði svefnstaður og stofa. Í ofanálag þarf herbergið að búa yfir karakter og stíl. Það kann að hljóma flókið en þó er það einfaldara en þú heldur; lykillinn er að hafa nóg af sniðugum hirslum.
Líkt og vínylplöturnar á veggnum þá er þetta herbergi eins og uppáhaldshljómsveitin þín sem þú færð aldrei leið á. Sniðugar hirslur auðvelda þér að stilla upp því sem þér þykir fallegt þar sem allt annað er á sínum stað í skúffum, skápum eða hillum. Þegar þú ert með góðar hirslur þá er einnig einfaldara að breyta útlitinu eftir því sem áhugamálin þróast með því að breyta um litapallettu og smáhluti.
Sófarúm er líklega snjallasta húsgagnið, bæði dag og nótt. Fyrir utan að vera bæði sófi og rúm býður það einnig upp á pláss fyrir hirslu eða gestarúm. VIHALS sófarúmið er með aukarúmi sem hægt er að draga fram hvenær sem þörf er á plássi fyrir næturgest. Geymdu aukasængur og -kodda í DIMPA hirslu til að hafa þau aðgengileg og verja fyrir ryki.
Þegar kemur að sveigjanlegri, nytsamlegri og sniðugri hirslu jafnast ekkert á við samsetninguna af PAX fataskáp og KOMPLEMENT innvolsi. Vörulínurnar bjóða upp á ótal valmöguleika og því getur þú búið til hirslu sem hentar þínum þörfum. Prófaðu teikniforritið á vefnum okkar og fylgstu með hönnuðinum innra með þér brjótast fram. Annar kostur við PAX er að hann er nú samanbrjótanlegur sem gerir það mun auðveldara að taka skápinn með þegar þú flytur.
Hirslur koma sér auðvitað vel til að geyma hluti en þar að auki skapa þær skipulag og koma reiðu á hlutina þína þannig að þú getur leyft skrautmunum og öðrum hlutum sem þér þykir vænt um að skína.
Ekki allar skreytingar eiga heima í ramma og þú vilt kannski ekki hafa þær á borðinu eða gluggakistunni – þá gæti verið sniðugt að koma upp hirslu (eða tveimur ... eða sex) eins og IVAR á vegginn og fá þannig fullkominn stað fyrir alla fallegu hlutina þína. Ef þú átt mikið af smáhlutum getur þú sett þá í kassa og geymt í hirslunni.
Unglingaherbergið er oft afar prívat þar sem allir þurfa að banka og fá leyfi til að koma inn. Á sama tíma verður það gjarnan að félagsmiðstöð þegar vinirnir koma yfir. Sveigjanleg húsgögn og staflanlegir stólar gera rýminu kleift að laga sig að tilefninu!
Með stílhreinum grunni og góðum hirslum er auðvelt að laga herbergið að nýjum áhugamálum og stíl. Það þarf aðeins að skipta út rúmfötum eða velja nýjan lit á hliðarborðið til að umbreyta útlitinu. Það eina sem er óhagganlegt eru þægindin sem fylgja rúminu, enda er það kjarni herbergisins þar sem hægt er að slaka á, læra, spjalla, snarla – og sofa!
Vöru bætt við óskalistinn þinn
Vara fjarlægð frá óskalistinn þinn