Ryðfrítt stál, ál, kolstál, steypujárn, kopar? Óhúðað, gljábrennt, með keramikhúðun? Úr hvaða efni er besta pannan – og hvaða panna er best fyrir þig? Það veltur allt á því hvað og hvernig þú eldar. Margir matreiðslumeistarar nota ólíkar gerðir af pottum og pönnum eftir því hvað þeir eru að elda.
IKEA pottar og pönnur

Ryðfrítt stál (óhúðað)

Ryðfrítt stál virkar á allar gerðir helluborða, líka spanhellur. Efnið er í miklu uppáhaldi hjá matreiðslumeisturum en það þarf að læra inn á það og nota réttan hita til að koma í veg fyrir að matur festist við efnið. Ef þú ert byrjandi er mælt með pönnum með keramikhúðun. Ef þú vilt fágað útlit og fyrsta flokks afköst skaltu velja pönnur úr ryðfríu stáli með koparyfirborði.

Kostir

  • Fjölhæft og endingargott
  • Hitnar nokkuð fljótt/heldur vel hita
  • Má fara í uppþvottavél
  • Má fara í ofn (fer eftir handfangi)
  • Virkar á allar gerðir helluborða, einnig spanhellur

Ókostir

  • Þarf nákvæmni og kunnáttu til að koma í veg fyrir að matur festist
  • Erfiðara að þrífa en keramikhúðun

Viðhald
Mikilvægast er að láta eldunarílátin kólna áður en þau eru skoluð, þar sem snöggar hitabreytingar geta valdið því að þau aflagist. Flestar pönnur og pottar úr ryðfríu stáli mega fara í uppþvottavél en sumir kokkar kjósa frekar að handþvo þau. Ef matur hefur festst við skaltu blanda þvottaefni eða ediki saman við vatn og láta sjóða í nokkrar mínútur. Ef nauðsyn krefur geturðu notað stálull til að klára verkið. Óhætt er að nota eldhúsáhöld úr silíkoni, viði, næloni eða ryðfríu stáli.

 

Skoðaðu potta og pönnur úr ryðfríu stáli
IKEA pottar og pönnur

Skoðaðu potta og pönnur úr ryðfríu stáli
IKEA pottar og pönnur

Ál

Álið er skilvirkur hitaleiðari en pottar og pönnur úr áli tryggja að maturinn hitni jafnt. IKEA pottar og pönnur úr áli eru með keramikhúðun sem gerir þau hentug til að elda mat með mikilli sýru.

Kostir

  • Létt og hagstætt
  • Hitnar hratt/dreifir hitanum vel
  • Má nota á spanhellur – IKEA álpönnur eru með botna úr segulmögnuðu efni

Ókostir

  • Heldur ekki hita sérstaklega vel og hentar því síður fyrir hægeldaða rétti
  • Má ekki ofhita við upphitun
  • Má ekki fara í uppþvottavél
  • Mjúkur málmur þannig að hann getur rispast og beyglast

Viðhald
Eftir hverja notkun: Láttu pönnuna kólna alveg og þvoðu hana í höndunum. Notaðu áhöld úr plasti, viði eða silíkoni sem eru ekki hvöss. Forðastu málmáhöld eða annað sem gæti rispað eða skemmt keramikhúðunina.


Keramikhúðun

Pönnur með keramikhúðun eru gott val fyrir flesta kokka en koma sér einstaklega vel fyrir byrjendur. Það er auðvelt að þrífa þær, þær henta vel fyrir viðkvæman mat eins og egg eða fisk og þú getur eldað með lítilli sem engri fitu.

IKEA eldunarílát með kísilefni sem kallast Sol-gel eða keramikhúðun haldast falleg lengur með réttri umhirðu og notkun. Þessi endingargóða húðun hefur framúrskarandi viðloðunarfría eiginleika án notkunar á PTFE eða öðrum PFAS-efnum.

 

Viðhald á IKEA pönnum með keramikhúðun

  • Ekki fara yfir ráðlagðan hita, 250°C
  • Ekki nota málmáhöld sem gætu rispað húðunina
  • Leyfðu pönnunni að kólna og þvoðu hana í höndunum með volgu vatni og mjúkum svampi
IKEA pottar og pönnur
IKEA pottar og pönnur

Kolstál

Eldunarílát úr kolstáli eru jafn endingargóð og steypujárn en þynnri.

Kostir

  • Alhliða panna sem ekki festist við þegar hún hefur verið steikt til eftir leiðbeiningunum
  • Dreifir hita jafnt/viðheldur honum í langan tíma
  • Léttari en steypujárn
  • Virkar á allar tegundir helluborða, einnig spanhellur
  • Viðloðunarfríir eiginleikar batna við notkun ef pannan fær rétt viðhald
  • Má fara í ofn

Ókostir

  • Þarf að steikja til reglulega
  • Þarf að þvo upp í höndunum
  • Virkar ekki fyrir matvæli með mikilli sýru

Viðhald
Til að búa til viðloðunarfrítt yfirborð skaltu bera á pönnuna bragðdaufa olíu og steikja til í forhituðum ofni (200°C í 40 mínútur) eða á helluborði (miðlungshiti í um 10 mínútur) og endurtaktu tvisvar í viðbót. Leyfðu henni að kólna og þurrkaðu umfram olíu. Steiktu til reglulega. Eftir hverja notkun: Leyfðu pönnunni að kólna alveg áður en þú skolar hana. Þrífðu pönnuna í höndunum með því að skrúbba hana með uppþvottalegi eða með salti og skrúbbi og þurrkaðu hana vandlega til að koma í veg fyrir ryð. Virkar með eldhúsáhöldum úr viði, silíkoni, næloni eða ryðfríu stáli.



Skoðaðu eldhúsáhöld úr kolstáli

Skoðaðu eldhúsáhöld úr kolstáli

Steypujárn/gljábrennt steypujárn

Steypujárn er endingargott en krefst viðhalds og hentar ekki fyrir matvæli með mikilli sýru, nema það sé gljábrennt. IKEA pönnurnar eru úr steypujárni þar sem það gefur bestu útkomuna en pottarnir eru gljábrenndir svo að þeir henti fyrir mat með sýru.

Kostir

  • Endingargott og slitsterkt
  • Dreifir hita jafnt/heldur honum vel
  • Fallegt
  • Virkar á allar gerðir helluborða, einnig spanhellur
  • Má fara í ofn

Ókostir

  • Hentar ekki fyrir matvæli með mikilli sýru (nema gljábrennt)
  • Þarf að steikja til (nema gljábrennt)
  • Þungt
  • Þarf að þvo upp í höndunum

Umhirða
Búðu til viðloðunarfrítt yfirborð á pönnu úr steypujárni með því að steikja hana til fyrir fyrstu notkun. Berðu á hana bragðdaufa olíu og hitaðu við 150°C í minnst klukkustund. Leyfðu henni að kólna og þurrkaðu umfram olíu. Steiktu hana til reglulega. Eftir hverja notkun: Leyfðu henni að kólna alveg áður en þú skolar hana. Þrífðu í höndunum með örlitlum uppþvottalegi, grófu salti eða skrúbb. Þurrkaðu alveg til að koma í veg fyrir ryð. Þú getur notað áhöld úr hvaða efni sem er, en reyndu að forðast að nota málm í gljábrennt eldunarílát.

 

Skoðaðu eldunaráhöld úr styepujárni
IKEA pottar og pönnur

Skoðaðu eldunaráhöld úr styepujárni

Svona á að steikja til pönnur úr kolstáli og steypujárni

Skoðaðu myndbandið fyrir leiðbeiningar um hvernig á að steikja til pönnur úr kolstáli. Aðferðin er nánast sú sama fyrir steypujárn en tími og hitastig eru örlítið frábrugðin. Þegar þú steikir til pönnur býrðu til yfirborð sem maturinn festist síður við og auðveldar þannig eldamennskuna.

Aftur efst
+

Vöruvöktun

Áætlað magn

Tilkynning hefur verið stillt

X