Hér er heimilisleg og skapandi vinnuaðstaða sprotafyrirtækis. Litríkir veggir skapa skemmtilegt mótvægi við svört og hvít húsgögn og gott jafnvægi er á milli opinna vinnurýma og einstaklingsskrifborða - og ekki skemmir fyrir að kostnaði er haldið í lágmarki. Skrifstofan sýnir vel hvernig sköpun, þægindi og stíll mætast.
Vinnan verður auðveldari í þægilegum stól
Hugsaðu vel um líkamsstöðuna með góðum húsgögnum. Þetta hæðarstillanlega skrifborð gerir þér kleift að skipta á milli standandi og sitjandi stöðu og skrifborðsstóllinn veitir þér góðan stuðning þegar þú situr.
Skoðaðu skrifborðsstólaEinstaklingshirslur
Haltu skrifstofunni snyrtilegri með skápum fyrir starfsfólkið. Hægt er að setja hengilás á þessa skápa og geyma eigur sínar þar áhyggjulaust.
Skoðaðu skrifstofuhirslur
Ekki gleyma kaffipásunni
Í eldhúsinu er sniðugt að hafa borð með snögum til þess að hengja upp töskur og jakka. Rýmið getur einnig verið notað fyrir óformlega fundi.
Skoðaðu borðGóðar hugmyndir og létt spjall
Sófahorn með litríkum stólum og sófum ásamt færanlegum hliðarborðum. Heimilislegt og glaðlegt rými fyrir hugmyndavinnu, kaffipásur eða fundi.
Skoðaðu hægindastóla